Dagskrá Umhverfisþings dagana 9. og 10. október liggur nú fyrir og er sjálfbær þróun meginefni þingsins að þessu sinni. Á þinginu verður m.a. kynnt ný skýrsla umhverfisráðherra um umhverfi og auðlindir og drög að nýjum áherslum í stefnumótun stjórnvalda um sjálfbæra þróun.

Í málstofum á þinginu verður fjallað um umhverfismál í sveitarfélögum og atvinnulífinu. Einnig er lögð áhersla á þátttöku ungs fólks í þinginu til að stuðla að umræðu milli kynslóðanna um framtíðarþróun Íslands.

Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar, verður heiðursgestur og mun hann flytja erindi að morgni föstudagsins 9. október tengt umfjöllun þingsins.

Sif Gunnarsdóttir og Freyr Eyjólfsson verða þingforsetar.

Óskað er eftir að þátttakendur á Umhverfisþingi skrái þátttöku sína á vefsíðu umhverfisráðuneytisins eða í síma 5458600 eigi síðar en 2. október næstkomandi. Mikilvægt er að boðsgestir skrái sig einnig á þingið. Þingfulltrúar eiga þess kost að kaupa hádegisverð á Hótel Nordica á kr. 2.300 á föstudeginum.
Hægt er að fara beint á skráningarsíðu með því að smella hé
r.

Dagskrá Umhverfisþings 9. og 10. október 2009:

Föstudagur 9. október:
09.00 – 09.50 Þingsetning.
09.00 - 09.15 Ávarp: Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra.
09.15 – 09.40 Ávarp: Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Hornafjarðar.
09.40 - 09.50 Ávarp: Fulltrúi ungmenna.
Kaffihlé.
10.10 – 10.30 Umhverfi og auðlindir – Stefnum við í átt til sjálfbærrar þróunar? Kynning á skýrslu umhverfisráðherra.
10.30 – 10.40 Velferð til framtíðar, nýjar áherslur 2010-2013.
10.40 – 11.00 Hugleiðingar um umhverfismál með hliðsjón af skýrslu umhverfisráðherra. Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor við Háskóla Íslands.
11.00 – 11.10 Fulltrúi umhverfisverndarsamtaka.
11.10 – 11.20 Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
11.20 – 11.30 Fulltrúi Samtaka atvinnulífsins.
11.30 – 12.15 Almennar umræður um skýrsluna og Velferð til framtíðar.
12.15 – 13.15 Matarhlé.
13.15 – 17.00 Erindi og umræður í málstofum A og B.
17:15 Móttaka umhverfisráðherra.
18.30 Sýning á heimildarmyndinni HOME eftir leikstjórann Yann Arthus-Bertrand í boði Franska sendiráðsins á Íslandi.
Málstofa A: Umhverfismál í sveitarfélögum
Málstofustjóri:Ellý Katrín Guðmundsdóttir. 10 mínútna erindi og umræður.
Samgöngumál
  • Samgöngustefna stjórnvalda. Kristján Möller, samgönguráðherra.
  • Hvernig er hægt að draga úr losun frá samgöngum? Brynhildur Davíðsdóttir, dósent í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands.
  • Hvernig minnka ég útblásturinn minn? Sigurður Ingi Friðleifsson, framkvæmdastjóri Orkuseturs
Akstur utan vega
  • Aðgerðir umhverfisráðuneytisins til að koma í veg fyrir akstur utan vega. Sesselja Bjarnadóttir, sérfræðingur umhverfisráðuneyti
  • Einstök náttúra, en hversu lengi? – Utanvegaakstur og umgengni ferðafólks. Skúli Skúlason, fulltrúi Samtaka útivistarfélaga.
  • Utanvegaakstur – lagalegt umhverfi og hvað er til ráða? Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum
Sorpmál
  • Nýir tímar í úrgangsstjórnun sveitarfélaga. Guðmundur Tryggvi Ólafsson, framkvæmdastjóri Sorpstöðvar Suðurlands bs.
  • Stykkishólmsleiðin í sorphirðu og endurvinnslu. Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri.
Skipulags- og byggingarmál
  • Skipulagsstefna og sjálfbær þróun. Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins.
  • Sjálfbærni á sunnudögum. Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur hjá Alta.
  • Vistvæn hönnun mannvirkja og vottun. Helga Jóhanna Bjarnadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs EFLU verkfræðistofu.
Málstofa B: Umhverfismál og atvinnulífið
Málstofustjóri: Stefán Gíslason. 10 mínútna erindi og umræður
  • Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja – lúxus eða lífsnauðsyn? Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Auði Capital.
  • Iðnaður framtíðarinnar - sjálfbær nýsköpun. Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
  • Ert þú í Svansmerkinu? Græn tækifæri í framtíðinni Anne Maria Sparf, sérfræðingur Umhverfisstofnun.
  • Vistvæn innkaup og villtar auðlindir í atvinnulífinu. Finnur Sveinsson, ráðgjafi í innkaupa- og umhverfismálum.
  • PM Endurvinnsla –  Skapandi útflutningsfyrirtæki með umhverfislegan ávinning. Haraldur Aikmann, framkvæmdastjórk PM endurvinnslu
  • Umhverfisáhrif af fiskveiðum. Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir, Ms í umhverfis- og auðlindafræði.
  • Hvernig veiðum við í framtíðinni? Halla Jónsdóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
  • Sjálfbær ferðaþjónusta til framtíðar – sýn á gæða- og umhverfismál. Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri
  • Sjálfbær ferðaþjónusta – hvar stöndum við í dag? Berglind Viktorsdóttir, MS í umhverfisfræðum og gæðastjóri Ferðaþjónustu bænda
  • Fuglaskoðun og ferðamennska. Andrés Skúlason oddviti Djúpavogshrepps
Laugardagur 10. október
Stuttar hugvekjur: Hvernig náum við takmarkinu um sjálfbært Ísland?
09.00 - 09.10 Sveinn Jónsson frá Kálfskinni.
09.10 - 09.20 María Ellingsen, leikkona.
09.20 – 09.30 Guðmundur Ingi Guðbrandsson, verkefnastjóri, Stofnun Sæmundar fróða.
09.30 – 09.40 Brynhildur Pétursdóttir, ritstjóri Neytendablaðsins.
09.40 – 09.50 Fulltrúi ungmenna.
Kaffihlé
10.10 – 12.45 Pallborðsumræður
  • Fulltrúar félagasamtaka.
  • Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
  • Fulltrúi Samtaka atvinnulífsins.
  • Fulltrúi Alþýðusambands Íslands.
  • Fulltrúar allra stjórnmálaflokka á Alþingi.
  • Fulltrúi ungmenna.
Leifur Hauksson er stjórnandi pallborðs.
12.45 Stutt samantekt þingforseta.
12.55 Umhverfisráðherra slítur þinginu.
Birt:
22. september 2009
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Dagskrá Umhverfisþings 2009“, Náttúran.is: 22. september 2009 URL: http://nature.is/d/2009/09/22/dagskra-umhverfisthings-2009/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: