Frá sólinni berst orkurík geislun með stuttri bylgjulengd. Nokkur hluti þessarar geislunar endurkastast aftur út í geim, annar hluti dreifist í andrúmsloftinu og um helmingur geislunarinnar nær yfirborði jarðar sem sólarljós. Ljósið hitar yfirborð jarðar sem sendir varmann frá sér sem innrauða geislun með langri bylgjulengd. Innrauða geislunin sem ætti að fara aftur út í geim er fönguð af svokölluðum gróðurhúsalofttegundum sem mynda eins konar teppi eða gróðurhús umhverfis jörðina. Þannig kemst meiri sólarorka inn til jarðar en losnar frá henni og afleiðingarnar verða hækkun á meðalhita jarðar og hlýnun andrúmsloftsins.

Helstu gróðurhúsalofttegundir eru koltvíoxíð, vatnsgufa, metan, og efni eins og SF6 sem geta verið þúsundir ára í andrúmsloftinu. Koltvíoxíð myndast við bruna jarðefnaeldsneytis og losnar einnig frá iðnaði og vegna gróðureyðingar. Metan kemur frá búpeningi, úr mýrum og sífrerasvæðum sem eru að bráðna vegna hlýnandi loftslags. Nox efni koma úr áburði, jarðvegi, og frá bruna jarðefnaeldsneytis.

Magn koltvíoxíðs í andrúmsloftinu hefur aukist frá 280 ppm fyrir iðnbyltingu í 375 ppm árið 2005. Meðalhiti jarðar hefur hækkað um 0,7 °C á sama tíma. Helstu afleiðingar loftslagsbreytinga eru taldar vera eftirfarandi:

  • Kólnun í heiðhvolfi jarðar.
  • Hækkun meðalhita jarðar.·
  • Aukning úrkomu.
  • Hafís hverfur.
  • Yfirborð norðurhvels hitnar að vetri til.
  • Yfirborð sjávar hækkar.
  • Tíðari stormar.·
  • Gróðurbelti jarðar færast til.

Leiðir til þess að berjast við loftslagsbreytingar:

  • Tæknilegar lausnir – minni mengun.
  • Tæknilegar lausnir – taka CO2 úr andrúmsloftinu.
  • Breyttur lífsstíll – minni neysla.
  • Minnka brennslu olíu og jarðefnaeldsneytis.
  • Fræðsla um loftslagsbreytingar.
Birt:
11. nóvember 2009
Tilvitnun:
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir „Gróðurhúsaáhrifin“, Náttúran.is: 11. nóvember 2009 URL: http://nature.is/d/2007/04/16/grurhsahrifin/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 16. apríl 2007
breytt: 21. maí 2014

Skilaboð: