Boðað er til árlegrar verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Keppnin kallast Varðliðar umhverfisins og það eru umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur sem standa að henni. Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði.

Skilafrestur verkefna er til 31. mars 2011 og þau skal senda umhverfisráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”. Dómnefnd skipuð fulltrúum umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur velur úr innsendum verkefnum og tilnefnir Varðliða umhverfisins. Allir þátttakendur fá viðurkenningarskjal og valin verkefni verða verðlaunuð af umhverfisráðherra á Degi umhverfisins þann 25. apríl 2011.

Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um keppnina á heimasíðu umhverfisráðuneytisins.

Ljósmynd: Nemendur Snælandsskóla voru Varðliðar umhverfisins árið 2009, ljósm.: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
13. janúar 2011
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Boðað til verkefnasamkeppni um umhverfismál meðal grunnskólabarna“, Náttúran.is: 13. janúar 2011 URL: http://nature.is/d/2011/01/13/bodad-til-verkefnasamkeppni-um-umhverfismal-medal-/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: