Samtök um sögutengda ferðaþjónustu (SSF) stendur fyrir málþingi í Þjóðmenningarhúsinu þ. 16. apríl n.k. í samvinnu við Menntamálaráðuneytið og Útflutningsráð Íslands. Fjallað verður um menningar- og söguferðaþjónustu á Mön, Gotlandi og á Íslandi og tækifæri til nýsköpunar á þeim vettangi hérlendis.

Dagskrá:

  • 13:00 Ávarp - Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra
  • 13:10 Útflutningsráð - ferðaþjónustuverkefni - Þorleifur Þór Jónsson, forstöðumaður nýrra markaða hjá Útflutningsráði
  • 13:20 Söguslóðaferðir SSF og alþjóðleg samvinna - Rögnvaldur Guðmundsson, formaður SFF
  • 13:30 The Story of Mann - an expression of local, national and international value - for heritage identity - Stephen Harrison MBE, menningarfulltrúi ríkisstórnarinnar á Mön og fráfarandi framkvæmdastjóri Manx National Heritage
  • 14:10 Kaffihlé
  • 14:25 Gotaland - The Viking Island - Dan Carlsson, aðstoðarprófessor í fornleifafræði við Háskólann á Gotalandi
  • 14:55 Til fundar við Freysgoðann - Dagný Indriðadóttir, verkefnisstjóri Hrafnkelssöguslóðar
  • 15:15 „Skalt þú hafa voskufl ystan klæða og undir söluvoðarkyrtil mórendan.“ - Sýning félaga SFF á klæðaburði fólks á söguöld
  • 15:40 Kaffi og með því
  • 16:10 Á að selja handritin? - Vésteinn Ólason, fyrrverandi forstöðumaður Árnastofnunar
  • 16:30 Menningarmatseld handa börnum - Brynhildur Þórarinsdóttir barnabókahöfundur
  • 16:50 Samantekt - Skúli Björn Gunnarsson

Fundarstjóri Einar Á.E. Sæmundssson. Málþingsgjald 4.000 kr. - kaffiveitingar innifaldar. Gjald fyrir nemendur og félaga í SSF: 2.000 kr. Skráning: Kristín Sóley Björnsdóttir, ritari SSF ksb@akmus.is.

Birt:
14. apríl 2009
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Söguslóðir 2009 - Unnið úr arfinum“, Náttúran.is: 14. apríl 2009 URL: http://nature.is/d/2009/04/14/soguslooir-2009-unnio-ur-arfinum/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: