Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa undanfarin ár sótt jólatré til íbúa svæðisins og veita þau nánari upplýsingar um það hvert fyrir sig. Það sama gildir um önnur sveitarfélög á landinu. Jólatré höfuðborgarbúa verða sótt í hverfin dagana 7.-10. janúar. Þeim sem ekki geta nýtt sér þjónustu sveitarfélaganna er bent á endurvinnslustöðvar SORPU, þar sem einnig er tekið við jólatrjám.

Borgarbúar eru hvattir til að setja tré sína á áberandi staði utan lóðamarka sinna þannig að auðvelt sé að sjá þau. Nokkuð hefur verið um það að „beinagrindur“ af jólatrjám fari á ferðalög um borg og bþ í rokinu og því er mikilvægt að ganga frá þeim þannig að þeim blási ekki auðveldlega í burtu. Jólatré borgarbúa eru kurluð og notuð í moltuframleiðslu.

Íbúar utan höfuðborgarsvæðisins verða að fylgjast með fréttatilkynningum frá sinum sveitarfélögum um hvort og hvenær trén verða sótt. Hægt er að nýta trén á ýmsan hátt í garðinum t.d. til eigin moltugerðar eða nota stofnviðinn til einhvers gags. T.d. saga hann niður og þurrka sem eldivið, eða nota til smíða og föndurs. Sjá nánar um moltu hér í garðinum.

Sjá grein um jólatré og umhverfið.

Grafík: Dautt tré næring fyrir nýja plöntu, Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.
Birt:
5. janúar 2008
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Jólatré eiga sér framhaldslíf“, Náttúran.is: 5. janúar 2008 URL: http://nature.is/d/2008/01/04/jolatre-eiga-ser-framhaldslif/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 4. janúar 2008
breytt: 2. janúar 2009

Skilaboð: