Framtíðarlandið bíður til morgunverðarfundar þ. 13. júní, um arðsemi stóriðju. Fundurinn verður haldinn í Norræna húsinu, húsið opnar kl. 08:00, dagskrá hefst 08:30 og lýkur kl. 09:30.

Atvinnulífshópur Framtíðarlandsins tók fyrr á árinu saman skýrslu um byggingu Kárahnjúkavirkjunar og álvers í Reyðarfirði. Þar er þeirri spurningu svarað hvort framkvæmdirnar hafi verið réttar og skynsamlegar miðað við arðsemi, umhverfiskostnað, lýðræði, byggðasjónarmið og hagstjórn.

Framtíðarlandið efnir til kynningar á skýrslunni og pallborðsumræðna um innihald hennar á fundinum í fyrramálið. Jafnframt má búast við líflegum umræðum um arðsemi þeirra framkvæmda sem nú standa fyrir dyrum.

Þátttakendur í pallborði verða:
  • Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra
  • Sigurður Jóhannesson, hagfræðingur
  • Stefán Pétursson, framkvæmdarstjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar
  • Yngvi Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri Verðbréfasviðs Landsbankans

Umræðum stjórnar Hafliði Helgason, blaðamaður.
Skýrsluna má nálgast á heimasíðu Framtíðarlandsins www.framtidarlandid.is

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!

Myndin er af álverksmiðju Alcoa, Fjarðaráli, í Reyðarfirði. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
12. júní 2007
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Morgunverðarfundur“, Náttúran.is: 12. júní 2007 URL: http://nature.is/d/2007/06/12/morgunverarfundur/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 9. júlí 2007

Skilaboð: