Vikuna 15. – 19. september verður haldin endurvinnsluvika í fyrsta sinn á Íslandi. Úrvinnslusjóður stendur að átakinu í samvinnu við umhverfisráðuneyti, menntamálaráðuneyti, Sorpu, Gámaþjónustuna, Íslenska gámafélagið og Endurvinnsluna.

Lögð verður áhersla á að kynna mikilvægi endurvinnslu fyrir íslenskt samfélag, sérstaklega á pappa, pappír og plasti. Sérstök áhersla verður lögð á kynningu fyrir unglinga þar sem kannanir benda til að fólk á aldrinum 16-20 ára standi sig einna verst í flokkun sorps. Flestir framhaldsskólar landsins munu taka þátt í endurvinnsluvikunni. Hvatt verður til kennslu um mikilvægi endurvinnslu í lífsleikni í framhaldsskólum og hefur verið útbúið kennsluefni sem aðgengilegt er á vef Úrvinnslusjóðs. Sjá nánar um Endurvinnsluvikuna á vef Úrvinnslusjóðs.

Þess má einnig geta að plaköt og annað kynningarefni frá Náttúran.is verður til sýnis á Endurvinnsluvikunni í Menntaskólanum í Hamrahlíð en um 30 framhaldsskólar víðs vegar á landinu taka þátt í Endurvinnsluvikunni.

Birt:
13. september 2008
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Endurvinnsluvika haldin í fyrsta sinn hér á landi“, Náttúran.is: 13. september 2008 URL: http://nature.is/d/2008/09/13/endurvinnsluvikan/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: