Í Skaftholti í Gnúpverjahreppi er stundaður lífrænn búskapur. Þar hefur ennfremur verið unnið meðferðarstarf í 28 ár. Skaftholt er sjálfum sér nægt með búsafurðir allar. Þar búa nú um 16 manns en 20 manns koma að starfseminni á einn eða annan hátt. Mikil uppbygging hefur átt sér stað en þeir einstaklingar sem búa í Skaftholti þurfa friðsælt umhverfi og mikilvægur þáttur í meðferðarstarfinu er róandi nærvera Þjórsár og hinnar stórbrotna náttúru allt um kring.

Laugardaginn 23. ágúst frá kl. 14:00 til 17:00 verður opinn dagur í Skaftholit en það er árlegur viðburður að bjóða fólki að koma í heimsókn og kynna sér starfsemina. Lífræn grænmetis- og veitingasala og allir eru hjartanlega velkomnir!

Ef þú slærð inn leitarorðið Skaftholt í leitarvélina efst fyrir miðju hér á síðunni, finnur þú staðsetningu Skaftholts á græna kortinu og greinar um ýmislegt sem snertir Skaftholt.

Myndin er af kamillu sem vex við gróðurhús í Skaftholti. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.
Birt:
16. ágúst 2008
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Opinn dagur í Skaftholti“, Náttúran.is: 16. ágúst 2008 URL: http://nature.is/d/2008/08/15/opinn-dagur-i-skaftholti/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 15. ágúst 2008
breytt: 17. ágúst 2008

Skilaboð: