Boðað er í þriðja sinn til verkefnasamkeppni um umhverfismál á meðal grunnskólabarna í 5. til 10. bekk. Keppnin kallast Varðliðar umhverfisins en umhverfisráðuneytið, Landvernd og Náttúruskóli Reykjavíkur standa að henni.

Markmið keppninnar er að hvetja ungt fólk til góðra verka í umhverfisvernd, vekja athygli á sýn ungs fólks á umhverfismál og kalla eftir leiðsögn yngri kynslóðarinnar á því sviði. Á síðasta ári voru nemendur úr Lþsuhólsskóla og Fossvogsskóla útnefndir varðliðar umhverfisins.

Skilafrestur verkefna er til 27. mars 2009 og þau skal senda umhverfisráðuneytinu, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík, merkt ,,Varðliðar umhverfisins”. Dómnefnd skipuð fulltrúum umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur velur bestu verkefnin fyrir Dag umhverfisins 25. apríl 2009.

Nánari upplýsingar um keppnina er að finna hér í meðfylgjandi skjali.
Myndin er af einum dreng sem var í vinningsliði Varðliða umhverfisins árið 2007.
Birt:
9. janúar 2009
Höfundur:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Varðliðar umhverfisins 2009“, Náttúran.is: 9. janúar 2009 URL: http://nature.is/d/2009/01/09/varolioar-umhverfisins-2009/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: