Útlit er fyrir að samkeppni komist á í sölu á metangasi á bifreiðar. Hingað til hefur bara verið hægt að kaupa metangas á tveimur afgreiðslustöðvum N1 á höfuðborgarsvæðinu.

Dofri Hermannsson, framkvæmdastjóri Metanorku ehf., sem er dótturfélag Íslenska gámafélagsins, segir að við nánari skoðun hafi komið í ljós að einkasölusamningur N1 á metangasi við Metan hf., framleiðanda gassins, hafi ekki náð nema til þess gass sem fari eftir leiðslu sem lögð hafi verið frá Álfsnesi og yfir í afgreiðslustöð N1 í Ártúnsbrekku.

Dofri segir einkennilegt að þeim sem ætlað hafi í samkeppni við N1 í sölu á metangasi hafi hingað til verið vísað til N1 um kaup á gasinu.

„Við sóttum hins vegar um leyfi til að kaupa á kostnaðarverði gas í heildsölu beint úr framleiðslustöðinni á Álfsnesi," segir Dofri og kveður alveg ljóst að eigi að nást markmið um að fjölga bílum sem aki á vistvænu innlendu eldsneyti, eins og metani, þá þurfi að bæta þjónustu við þá. „Við ætlum þá að setja gasið á sérstaka gáma sem við flytjum á afgreiðslustöðvarnar."

Dofri segist hafa fengið vilyrði fyrir því að opnað verði á að hver sem er geti fengið keypt gas hjá Metani þegar lokið hafi verið við að finna heildsöluverð á gasið. „Þá verður gefinn út verðlisti sem væntanlega ræðst af því magni sem menn vilja kaupa," segir hann og kveður jafnvel von á því að Metan ljúki því verki fyrir mánaðamót. Dofri segir mjög spennandi að sjá hvaða verð verður sett á gasið, en honum sýnist að hreinsikostnaður nemi um 25 krónum á hvern rúmmetra gass.

Metanorka hefur sótt um lóð fyrir fjölorkustöð bæði hjá Reykjavíkurborg og í Kópavogi, auk þess að vinna að uppsetningu slíkrar stöðvar á Reykjanesi í samstarfi við Orku- og tækniskóla Keilis. Þegar eru tvær afgreiðslustöðvar tilbúnar til uppsetningar.

„Þá höfum við jafnframt óskað eftir samstarfi við Akureyrarbæ um vinnslu á metani úr sorphaugunum þar með það fyrir augum að gefa Eyfirðingum líka kost á að keyra á metangasi," segir Dofri og kveður fráleitt að þjóð í efnahagsþrengingum skuli kveikja í metani sem ekki nýtist á bíla fyrir sem nemur milljörðum króna á ári hverju.

Oft hefur verið bent á að notkun metangass fylgi umhverfisávinningur auk þess sem sparast myndi gjaldeyrir sem annars færi í að kaupa eldsneyti frá útlöndum.

Birt:
14. september 2010
Höfundur:
óká
Uppruni:
Vísir.is
Tilvitnun:
óká „Metanorka - nýr smásöluaðili á metanmarkaði“, Náttúran.is: 14. september 2010 URL: http://nature.is/d/2010/09/14/metanorka-nyr-smasoluadili-metanmarkadi/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: