Skálafell Bike ParkÞann 8. ágúst sl. var opnaður í Skálafelli fyrsti hjólreiðavangur á Íslandi. Um er að ræða 3 km langa fjallahjólabraut, Dirt-Jump braut og BMX stökkpallur.

Lyftur í Skálafelli hafa verið opnaðar til að ferja hjólreiðamenn upp á topp en öllum er frjálst að nýta sér lyfturnar til að komast upp á topp til að ganga eða njóta útsýnis. Greiða þarf í lyfturnar og kostar dagskort kr. 2.000, síðustu tveir tímarnir kr. 1.300 og stök ferð kr. 500.

Þá stendur einnig til að lagfæra slóða sem liggja frá svæðinu til að auðvelda hjólreiðamönnum að hjóla niður í Kollafjörð, yfir í Heiðmörk, í Kjós og á Þingvelli.

Svæðið verður opið um helgar fram á haust á meðan veður leyfir.

Nánari upplýsingar á www.tinyurl.com/skalafell.

Birt:
19. ágúst 2010
Höfundur:
Reykjavik.is
Tilvitnun:
Reykjavik.is „Hjólreiðavangur í Skálafelli“, Náttúran.is: 19. ágúst 2010 URL: http://nature.is/d/2010/08/19/hjolreidavangur-i-skalafelli/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: