Námskeiðið er ætlað öllu áhugafólki um ræktun matjurta í eigin garði.
Á námskeiðinu verður sérstaklega skoðað hvernig standa skuli að lífrænni ræktun útimatjurta. Farið verður yfir mikilvægi jarðvegsins í ræktuninni og eins hvernig megi bæta þann jarðveg sem fyrir er. Komið verður inn á staðsetningu matjurtagarðsins á lóðum með tilliti til sólar og skjóls. Farið verður yfir hvers konar umhirðu sé almennt þörf til að ná sem bestri uppskeru. Helstu tegundir til ræktunar verða kynntar. Hluti námskeiðsins er verkleg sýnikennsla.

Kennari: Gunnþór K. Guðfinnsson Umhverfisstjóri Ölfusi og stundarkennari við LbhÍ.
Tími: Lau. 26. feb, kl. 9:00-15:00 (7 kennslustundir) hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri.
Verð: 12.500 kr. (Kaffi, hádegismatur og gögn innifalin í verði).

Skráning er til 23. febrúar Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 3.000 kr (óafturkræft) staðfestingargjald á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590. Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000.

Ljósmynd: Gulrætur í garði Hildar Hákonardóttur, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
14. febrúar 2011
Tilvitnun:
Landbúnaðarháskóli Íslands „Námskeið í lífrænni ræktun útimatjurta - Hvanneyri“, Náttúran.is: 14. febrúar 2011 URL: http://nature.is/d/2011/02/14/namskeid-i-lifraenni-raektun-utimatjurta-hvanneyri/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: