Aðalfundur Landverndar verður haldinn að Nauthóli í Nauthólsvík fimmtudaginn 26. maí kl. 16.00 og opnar húsið kl. 15.45.

Í kjölfar venjulegra aðalfundarstarfa verður boðið upp á hringborðsumræður þar sem sjónum verður beint að „umgengni við landið“. Á mörgu er að taka og vonast stjórn og starfsmenn Landverndar til að með hjálp fundargesta verði hægt að varpa ljósi á brýnustu verkefnin og leiðir til úrlausna. Landvernd hvetur náttúruverndarfólk eindregið til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í hringborðsumræðum.

Á aðalfundi verður kosið til stjórnar og eru fimm í kjöri sem endranær, þar af fjórir stjórnarmenn, auk formanns. Auk þess kýs aðalfundur skoðunarmenn reikninga. Þau Heiðrún Guðmundsdóttir, Tryggvi Felixson og Þóra Ellen Þórhallsdóttir hafa verið skipuð í uppstillingarnefnd aðalfundar.

Þeir sem vilja koma ábendingum um nýja stjórnarmenn og formann á framfæri við uppstillingarnefnd geta sent skilaboð á netfangið landvernd@landvernd.is. Ábendingar þurfa að berast eigi síðar en sunnudaginn 22. maí. Farið verður með allar ábendingar sem trúnaðarmál.

Dagsrká:

15:45 Húsið opnar - skráning

16.00 Aðalfundarstörf hefjast

  • Ávarp Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra
  • Kjör fundarstjóra og fundarritara
  • Formaður flytur skýrslu um starfsemina undangengið starfsár
  • Kynning á ársreikningum fyrir 2010
  • Kynning á tillögum að ályktunum aðalfundar
  • Kosning til stjórnar og skoðunarmanna reikninga
  • Kynning á ferðum Landverndar í sumar

17:15 Umgengnin við landið

  • Hringborðsumræður að hætti heimskaffis

18:45 Afgreiðsla ályktana

19:15 Ilmandi súpa

Minnt er á að til þess að öðlast atkvæðisrétt á aðalfundi þurfa félagar og aðildarfélög að hafa greitt árgjaldið 2010-2011.

Vinsamlegast skráið þátttöku í síma 552 5242 eða sendið tölvupóst á landvernd@landvernd.is.

Fundurinn er öllum opinn og nýir félagar eru velkomnir.

Birt:
18. maí 2011
Höfundur:
Landvernd
Uppruni:
Landvernd
Tilvitnun:
Landvernd „Aðalfundur Landverndar 2011“, Náttúran.is: 18. maí 2011 URL: http://nature.is/d/2011/05/18/adalfundur-landverndar-2011/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: