Náttúran umfjallanirNáttúran.is byggir hugmyndafræði sína á samstarfi við alla sem eitthvað hafa fram að færi á sviði náttúru og umhverfis.

Náttúran.is vill auka sýnileika annarra en til þess að það geti orðið treystum við á að samvinnuviljinn sé fyrir hendi í báðar áttir. Sýnileiki og vöxtur Náttúran.is er grundvallaratriði svo vefurinn geti sinnt því ábyrgðarfulla hlutverki að gefa yfirsýn á stöðu umhverfistengdra mála á Íslandi.

Við, sem höfum árum saman unnið að því að skapa þennan yfirgripsmikla vettvang sem vefurinn er orðinn, viljum koma á framfæri þakklæti til allra þeirra starfsmanna á öðrum miðlum sem fjallað hafa um starfsemi okkar. Við hlökkum til þess að mega efla vistvæna framtíð Íslands enn frekar í samvinnu við ykkur.

Sjá lista yfir umfjallanir, útvarpsþætti, greinar og viðtöl um Náttúran.is á öðrum miðlum.

Grafík: Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Natturan.is

Birt:
12. júní 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sýnileiki Náttúran.is á öðrum miðlum“, Náttúran.is: 12. júní 2011 URL: http://nature.is/d/2010/07/12/synileiki-natturan-odrum-midlum/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 12. júlí 2010
breytt: 11. júní 2011

Skilaboð: