Best er að nota sparperur í stofuna en sumir velja að vera með mildari perur í stofunni og sparperur á ganginum og í geymslunni. Veldu þann möguleika á lýsingu sem þér finnst bestur. Þó svo að sparperur séu töluvert dýrari þá nota þær einungis um 15-20% af orku vanalegrar ljósaperu auk þess sem líftími þeirra er allt að 10 sinnum lengri en venjulegra pera.

Ef öllum perum á íslenskum heimilum yrði skipt út og sparperur teknar í notkun, sparast sem samsvarar einni 20MW virkjun.

Með því að smella á aðra hluti á myndinni af stofunni hér að ofan birtast upplýsingar um þá.

Birt:
15. október 2009
Höfundur:
Náttúran er
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Náttúran er „Svona sparar þú orku í stofunni - Sparperur“, Náttúran.is: 15. október 2009 URL: http://nature.is/d/2008/02/14/svona-sparar-thu-orku-i-stofunni-sparperur/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 14. febrúar 2008
breytt: 15. október 2009

Skilaboð: