Sýning um sjálfbæra ferðaþjónusta verður opnuð í Sesseljuhúsi að Sólheimum laugardaginn 11. júní kl 15.00.

Sýningin er samstarfsverkefni Sesseljuhúss og Háskóla Íslands.

Í Sesseljuhúsi verða sýnd veggspjöld með 13 þemum sem sýna og fjalla um sjálfbæra ferðamennsku en þau eru unnin af nemendum í Ferðamálafræði í Háskóla Íslands.

Verkefnin eru:

  • Gjaldtaka og sjálfbærni í ferðaþjónustu
  • Heitar laugar á Íslandi, ferðamennska og sjálfbærni
  • Áhrif ferðamanna á umhverfið - dæmi frá Nepal og Egyptalandi
  • Vetrarferðamennska: skref í átt að sjálfbærni?
  • Heitar laugar - þolmörk og sjálfbærni
  • Utanvegaakstur - Ósjálfbær ferðamennska?
  • Eldfjallaþjóðgarður á Reykjanesi
  • Áhrif ferðamanna á umhverfi
  • Hver eru áhrif ferðamanna af skemmtiferðarskipum á umhverfið?
  • Umhverfisstjórnun í kjölfar náttúruhamfara
  • Víðerni og ferðamennska
  • Sjálfbært golf á Íslandi
  • Rafbílavæðing Íslands - Getur rafbílavæðing stuðlað að sjálfbærri ferðamennsku?

Einnig mun Rannveig Ólafsdóttir dósent í Ferðamálafræði halda fyrirlestur um sjálfbæra ferðamennsku.

Allir velkomnir!

Birt:
9. júní 2011
Höfundur:
Axel Benediktsson
Uppruni:
Sesseljuhús
Tilvitnun:
Axel Benediktsson „Sjálfbær ferðaþjónusta“, Náttúran.is: 9. júní 2011 URL: http://nature.is/d/2011/06/09/sjalfbaer-ferdathjonusta/ [Skoðað:24. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 10. júní 2011

Skilaboð: