Föstudaginn 16. maí verður efnt til málþings um lífrænan landbúnað í Norræna húsinu. Á fundinum verður fjallað um hvort lífrænn landbúnaður sé valkostur á Íslandi. Fundurinn hefst kl. 12:45 og stendur til kl. 17:00. Dr. Áslaug Helgadóttir, aðstoðarrektor rannsóknamála, Landbúnaðarháskóla Íslands setur fundinn og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra ávarpar fundarmenn. Fundarstjóri verður Dr. Sjöfn Sigurgísladóttir, forstjóri Matís.

Á fundinum verður reynt að varpa ljósi á ýmsar hliðar lífræns landbúnaðar. Eru lífrænar afurðir hollari en aðrar? Valda framleiðsluaðferðirnar minni skaða á umhverfinu en ef um hefðbundinn landbúnað væri að ræða? Nær lífrænn landbúnaður betur að uppfylla óskir neytenda hvað varðar dýravelferð? Á málþinginu verður reynt að leita svara við þessum spurningum og ótal öðrum.

Kristján Oddsson, bóndi á Neðra- Hálsi í Kjós flytur erindi sem hann nefnir Lífræn framleiðsla: Fyrir hvern og hvers vegna? Kristján fjallar fyrst og fremst um lífræna mjólkurframleiðslu sem viðskiptahugmynd – kosti þess og galla að stunda lífræna mjólkurframleiðslu. Þá mun dr. Guðni Þorvaldsson, dósent við Landbúnaðarháskóla Íslands gera grein fyrir upphafi og tilurð lífræns landbúnaðar ásamt þeirri hugmyndafræði sem þar liggur að baki. Hann ætlar að skoða hvort lífræn ræktun, eins og hún er kynnt nú um stundir, byggi á öðrum grunni en hugmyndafræði frumkvöðlanna.

Runólfur Sigursveinsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands fjallar um reglugerð um lífræna framleiðslu landbúnaðarafurða og merkingar og dr. Ólafur Dýrmundsson, ráðunautur hjá Bændasamtökum Íslands flytur erindi sem hann nefnir Skilyrði fyrir lífrænan landbúnað á Íslandi en í því verður einkum fjallað um líffræðileg skilyrði til slíks búskapar hér á landi með hliðsjón af frjósemi jarðvegs, loftslagi, velferð búfjár og búgreinum svo dæmi séu nefnd .Jafnframt mun Ólafur víkja stuttlega að stuðningi sem bændur eiga kost á til aðlögunar að lífrænum búskap.

Dr. Holger Kirchmann, prófessor við landbúnaðarháskólann, Uppsölum flytur erindi þar sem hann ber saman uppskeru, kolefnisbindingu, útskolun næringarefna og orkunotkun í lífrænum og hefðbundnum landbúnaði.

Grétar Hrafn Harðarson, lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands flytur erindi sem hann nefndir Samanburður á heilsufari og velferð búfjár og öryggi afurða í lífrænum og hefðbundnum landbúnaði. Í erindinu ætlar Grétar Hrafn að fjalla um hugsanlegar breytingar á tíðni framleiðslusjúkdóma þegar breytt er yfir í lífrænan landbúnað og hvernig bregðast megi við með fyrirbyggjandi aðgerðum. Þá ræðir Grétar Hrafn um hugsanlegan mun á hollustu afurða búfjár við lífrænar aðstæður. Að lokum mun dr. Daði Már Kristófersson, hagfræðingur hjá Hagfræðistofnun H.Í. flytja erindi sem hann nefnir Hagfræði lífræns landbúnaðar.

Þegar flutningi erinda er lokið verða fyrirspurnir og pallborðsumræður.

Myndin er af The Organic Pharmacie í London. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
13. maí 2008
Tilvitnun:
Landbúnaðarháskóli Íslands „Er lífrænn landbúnaður valkostur á Íslandi?“, Náttúran.is: 13. maí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/05/13/er-lifraenn-landbunaour-valkostur-islandi/ [Skoðað:23. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: