Matvælasýningin MATUR-INN 2007 verður haldin í Verkmenntaskólanum á Akureyri þ. 13. og 14. október.

Nú er ljóst að MATUR-INN 2007 verður langstærsta sýning sem haldinn hefur verið norðan heiða og einungis er helguð mat og matarmenningu. Síðustu dagana hefur stöðugt bæst á sýnendalistann og eru sýnendur nú komnir yfir 60 talsins! Sýningin mun endurspegla mikla breidd í matarmenningunni á Norðurlandi því auk fjölda sýnenda af Eyjafjarðarsvæðinu verða mjög öflugir básar frá Þingeyingum og Skagfirðingum.

Enn er mögulegt fá inni á sýningunni en við hvetjum áhugasama sýnendur að hugsa og framkvæma strax ef þeir ætla að tryggja sér pláss. Laust er einnig á markaðnum fyrir þá sem vilja selja úr haustuppskerunni, sultur, ber, grænmeti eða hvað sem er.

Sjá nánar.

Birt:
11. október 2007
Höfundur:
Matur úr héraði
Tilvitnun:
Matur úr héraði „Matur úr héraði - Local Food“, Náttúran.is: 11. október 2007 URL: http://nature.is/d/2007/10/10/matur-r-hrai-local-food/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 10. október 2007
breytt: 11. október 2007

Skilaboð: