Landmælingar Íslands hafa samþykkt stefnumótun fyrir stofnunina til ársins 2015. Stefnumótunin er unnin í ljósi mikilla breytinga á starfsumhverfi stofnunarinnar og forystuhlutverks sem henni verður falið við uppbyggingu á grunngerð landupplýsinga á Íslandi samkvæmt frumvarpi umhverfisráðherra.

Miklar breytingar hafa orðið á starfsumhverfi Landmælinga Íslands undanfarin ár vegna aukinnar notkunar almennings á kortum og öðrum landupplýsingum auk örrar tækniþróunar á þessu sviði. Umhverfisráðherra hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um grunngerð landupplýsinga (INSPIRE) sem miðar að því að auka notkun og aðgengi landupplýsinga hjá opinberum stofnunum, rannsóknastofnunum, sveitarfélögum og meðal almennings. Samkvæmt frumvarpinu er Landmælingum Íslands ætlað að hafa forystu í uppbyggingu á grunngerð landupplýsinga á Íslandi.

Í samræmi við nýja stefnumótun og breytingar á starfsumhverfi ákvað Magnús Guðmundsson, forstjóri Landmælinga Íslands, að endurskoða skipurit stofnunarinnar og tóku breytingarnar gildi í upphafi árs.

Frétt á heimasíðu Landmælinga Íslands.

Frumvarp um grunngerð landupplýsinga (INSPIRE).

Birt:
19. janúar 2011
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Ný stefnumótun Landmælinga vegna breytinga á starfsumhverfi“, Náttúran.is: 19. janúar 2011 URL: http://nature.is/d/2011/01/19/ny-stefnumotun-landmaelinga-vegna-breytinga-starfs/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: