Þann 10. desember s.l. veitti Orkusetrið Orkuveitu Reykjavíkur viðurkenningu fyrir vefinn „Orkan mín“ sem framúrskarandi lausn fyrir viðskiptavini.

Á vefnum www.orkanmin.is geta viðskiptavinir Orkuveitunnar fylgst með orkunotkun sinni á afar aðgengilegan hátt og nýtt upplýsingarnar til að bæta orkunýtinguna á heimilinu. Á einfaldan og myndrænan hátt má meðal annars sjá hvernig orkunotkun á heimilinu hefur þróast og hægt að bera hana saman við meðalnotkun sambærilegra heimila á Íslandi. Einnig er hægt að setja upp lista með þeim tækjum sem eru á heimilinu og sjá hversu mikla orku hvert og eitt tæki notar og hvað það kostar.

Framlag Orkuveitu Reykjavíkur stuðlar því að bættri ný tni orkuauðlinda landsins segir í frétt á vef Orkuseturs.

Birt:
15. desember 2009
Höfundur:
Orkusetur
Uppruni:
Orkusetur
Tilvitnun:
Orkusetur „Orkusetur verðlaunar vefinn „Orkan mín““, Náttúran.is: 15. desember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/12/15/orkusetur-verolaunar-vefinn-orkan-min/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: