Kort af göngugötunni HafnarstrætiHafnarstræti hefur nú verið verið lokað fyrir bílaumferð við Pósthússtræti til að gefa gangandi, hjólandi og verslunum betra rými. Þeir sem reka verslanir í götunni ætla að nýta sér hana með ýmsu móti í september til dæmis með sölutjöldum.

Hugmyndin að þessari breytingu er komin frá verslunar- og þjónustuaðilum við götuna og hafa þeir nú leyfi til þess að skapa skemmtilega útistemmningu í götunni. Bílastæði verða ekki heimil í götunni í september. Innkeyrsla fyrir bifreiðar sem þjóna fyrirtækjum í götunni er heimiluð frá Tryggvagötu.

Grafík: Kort af nýju göngugötunni Hafnarstræti.

Birt:
30. ágúst 2010
Tilvitnun:
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkur „Hafnarstræti breytt í göngugötu“, Náttúran.is: 30. ágúst 2010 URL: http://nature.is/d/2010/08/29/hafnarstraeti-breytt-i-gongugotu/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 29. ágúst 2010
breytt: 13. september 2010

Skilaboð: