Alls bárust 27 tilnefningar til umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2009 en frestur rann út í lok október. Tilkynnt verður um verðlaunahafann þann 19. nóvember næstkomandi.

Tilgangur verðlaunanna er að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi. Þau geti með því orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar. Verðlaunin hafa verið afhent árlega frá árinu 1995 og er þetta því í 15. skiptið.

Eftirtaldir aðilar eru tilnefndir að þessu sinni:

 

Brekkulækur í Miðfirði (Arinbjörn Jóhannsson)
Bílaleiga Flugleiða ehf.- Hertz
Bjarteyjarsandur á Hvalfjarðarströnd
Djúpavogshreppur
Drangeyjarferðir (Jón Eiríksson bóndi á Fagranesi)
Eldhestar
Farfuglaheimilið Ytra Lón á Langanesi
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
Ferðaþjónustan á Kirkjubóli á Ströndum
Garðyrkjustöðin Engi, Laugarási í Biskupstungum 
Heydalur í Mjóafirði
Hornbjargsviti (Óvissuferðir ehf.)
Hrífunes í Skaftártungum
Hveragerðisbær
Iceland Conservation Volunteers (Sjálfboðaliðar Umhverfisstofnunar)
Íslenskir Fjallaleiðsögumenn http://www.fjallaleidsogumenn.is
Norðursigling á Húsavík
Reykjanesbær (fyrir strandgönguleið)
Reykjanesfólkvangur
Selasetur Íslands á Hvammstanga
Sjálfbært Snæfellsnes (Verkefni 5 sveitarfélaga á Snæfellsnesi)
Skálanes á Seyðisfirði http://www.skalanes.com
Sveitarfélagið Skagaströnd
Tjaldsvæðið á Tálknafirði
Útilífsmiðstöð skáta við Úlfljótsvatn
Veraldarvinir
Vörumerkið Fisherman á Vestfjörðum

Birt:
6. nóvember 2009
Höfundur:
Ferðamálastofa
Tilvitnun:
Ferðamálastofa „27 aðilar tilnefndir til umhverfisverðlauna“, Náttúran.is: 6. nóvember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/11/06/27-aoilar-tilnefndir-til-umhverfisverolauna/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 28. maí 2010

Skilaboð: