Fimmtudaginn 12. júní er önnur gangan í röð gangna skógræktarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um Græna trefilinn. Skógræktarfélag Reykjavíkur hefur umsjón með þessari göngu.

Guðríður Helgadóttir, Landbúnaðarháskóla Íslands, leiðir gönguna, en áhersla verður á að skoða gróðurinn í grennd við skóginn og skógarbotninn. Gangan hefst við Borgarstjóraplan, kl. 20:00.

Skógargöngur á Græna treflinum verða öll fimmtudagskvöld í júní og fyrstu vikuna í júlí og hefjast göngurnar kl. 20. Göngurnar eru hluti af fræðslusamstarfi skógræktarfélaganna og Kaupþings.

Þetta eru léttar og þægilegar göngur í fallegu umhverfi. Göngurnar taka alls um tvo tíma og eru allir velkomnir.
Birt:
10. júní 2008
Tilvitnun:
Skógræktarfélag Reykjavíkur „Gengið á Græna treflinum - Heiðmörk“, Náttúran.is: 10. júní 2008 URL: http://nature.is/d/2008/06/10/gengio-graena-treflinum-heiomork/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: