Þann 18. september var opnaður ný r vefur til stuðnings Skjálfandafljóti. Á vefnum segir svo um tilurð vefsins: „Sameiginlegur áhugi fólks fyrir náttúruvernd og áhyggjur þess af því hve hugsunarlaust er oft gengið á verðmæti náttúrunnar, leiddi það saman í Kiðagili í Bárðardal miðvikudaginn 23. júlí sl. Þar ræddi fólk um hvort enn myndu uppi hugmyndir um virkjun Skjálfandafljóts og hverjar afleiðingar virkjun þess hefði fyrir umhverfi fljótsins.
Það vitum við í raun ekki, en það eitt vitum við fyrir víst, að við höfum ekki hugmynd um hverjar afleiðingar orkufrekja nútímans muni hafa í framtíðinni og þess vegna er nauðsynlegt að sporna við t.d. með því að vinna að verndun og friðlýsingu Skjálfandafljóts. Það var gaman og viðeigandi að hefja þá göngu úr Kiðagili. Það var ákveðið að halda áfram og markmið hópsins koma fram í svohljóðandi fréttatilkynningu:

Stofnaður hefur verið áhugahópur um friðlýsingu Skjálfandafljóts.
Það er markmið hópsins að vinna að friðlýsingu alls vatnasviðs Skjálfandafljóts,
stuðla að friðun og varðveislu landslags þess, náttúrufars og menningarminja
ásamt því að það verði notað til útivistar, ferðaþjónustu og hefðbundinna nytja.“

Þeir lesendur síðunnar sem vilja taka þátt í baráttunni fyrir verndun og friðlýsingu Skjálfandafljóts eða styðja málefnið með einum eða öðrum hætti, er bent á að skrá sig undir hnappnum ÉG STYÐ.

Skoða vefinn skjalfandafljot.is.

Birt:
22. september 2008
Tilvitnun:
Áhugahópur um friðlýsingu Skjálfandafljóts „Vefur til stuðnings friðlýsingar Skjálfandafljóts opnaður“, Náttúran.is: 22. september 2008 URL: http://nature.is/d/2008/09/22/vefur-til-stuonings-verndunar-og-friolysingar-skja/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: