Á Náttúrumarkaðinum hér á vefnum bjóðum við upp á úrval af Svansmerktum hreinlætisvörum sem fyrirtækið Servida flytur inn.

Markmiðið með Svaninum, Norræna umhverfismerkinu, er að auðvelda þér og öðrum neytendum að velja vörur sem hafa sem minnst skaðleg áhrif á umhverfið. Kröfur Svansins miðast við allan lífsferil vörunnar/þjónustunnar, frá vöggu til grafar. Það þýðir að áhrif vörunnar eru metin allt frá hráefni til úrgangs, og miðast kröfur Svansins við að lágmarka umhverfisálag vegna vörunnar. Það getur verið flókið mál að meta umhverfisáhrif vara og finna þá umhverfisvænstu. Svanurinn einfaldar málið og auðveldar þér að skapa betri framtíð!

Í hreinlætisvörudeildinni finnur þú allar Svansmerktu vörurnar okkar, þ.á.m. vörur í eldhúsið s.s. Katrin eldhúsrúllur, Sun uppþvottatöflur og Yes uppþvottalög. Með því að nota umhverfisvottaðar hreinsivörur í eldhúsinu ert þú að taka virkan þátt í því að umhverfisáhrif af hreinlætinu á þínu heimili séu eins lítil og mögulegt er. Með því að nota hreinsivörur og hreinlætisvörur sparlega og aðeins þegar nauðsyn ber til ert þú að enn frekar að minnka umhverfisáhrifin.

Skoða allar vörur í hreinlætisvörudeildinni
.
Skoðaðu meira um hreinlætisvörur og umhverfisáhrif þeirra hér í eldhúsinu.
Sjá viðmiðunarreglur Svansins.

Myndin er af Svansmerktu eldhúsvörurnum á Náttúrumarkaði. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
8. maí 2008
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Svansmerktar hreinlætisvörur í eldhúsið“, Náttúran.is: 8. maí 2008 URL: http://nature.is/d/2008/01/06/svansmerktar-hreinlaetisvorur-i-eldhusio/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 6. janúar 2008
breytt: 25. apríl 2010

Skilaboð: