Það sem áður var skilgreint sem úrgangur eða rusl er í dag hráefni eða auðlind fyrir aðra framleiðslu. Úrgangur og rusl er ekkert annað en auðlind á villigötum. Næstum allt er hægt að endurnota eða endurvinna en best er að forðast að kaupa „rusl“. Flest sveitarfélög taka á móti helstu endurvinnsluflokkum og er þar stuðst við Fenúrflokkana. Með skipulagi heimafyrir getur flokkunin verið skemmtileg fyrir alla fjölskyldumeðlimi og skilagjald á áldósum og gosflöskum getur verið góð tekjulind fyrir börnin á heimilinu.

Birt:
10. desember 2008
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Endurvinnsla“, Náttúran.is: 10. desember 2008 URL: http://nature.is/d/2008/04/21/endurvinnsla/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. apríl 2008
breytt: 21. maí 2014

Skilaboð: