Gámaþjónustan, Íslenska gámafélagið og íþróttafélög munu á nýju ári bjóða borgarbúum upp á þá þjónustu að hirða jólatré við heimili að hátíðunum loknum. Er þetta gert í samstarfi við Reykjavíkurborg. Sorphirðufyrirtækin munu kynna fyrirkomulag sitt á næstu dögum.  Íþróttafélögin sem hyggjast nota verkfnið til fjáröflunar starfsemi sinnar munu fara um hverfi borgarinnar með kerrur og bjóða fólki að flytja trén í endurvinnslu gegn gjaldi.

Flestir fara eina ferð um jólin á endurvinnslustöðvar Sorpu með ýmsar umbúðir, pakkningar utan um flugelda og annað sem til fellur. Jólatréð er eitt af því sem þarf að fara í endurvinnslu. Borgarbúar geta annað hvort farið sjálfir með jólatrén sín eða fengið þjónustu hjá sorphirðufyrirtækjum og íþróttafélögum.

Sjá nánar hjá þjónustuaðilunum; www,gamur.is og www,gamar.is og www.sorpa.is og www.reykjavik.is.

Grafík: Líf vex af dauðu, Guðrún Tryggvadóttir ©Náttúran.is.

Birt:
19. desember 2009
Tilvitnun:
Guðmundur B. Friðriksson „Jólatré í Reykjavík verða hirt á nýju ári af sorphirðufyrirtækjum og íþróttafélögum“, Náttúran.is: 19. desember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/12/19/jolatre-i-reykjavik-veroa-hirt-nyju-ari-af-sorphir/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: