Á bloggsíðu Stefáns Gíslason „sjálfbæru bloggi“ fjallar hann um upplifun sína á fundi með Paul Hawken í Þjóðmenningarhúsinu þ. 14. desember:

Í gær sat ég skemmtilegan og uppörvandi fyrirlestur Paul Hawken í Þjóðmenningarhúsinu. Ég hef vitað af Paul síðustu 10 árin og bækurnar hans hafa legið á náttborðinu mínu. Ef maður ætti að telja upp 10 helstu umhverfisfrömuði í heiminum í dag, þá er mjög líklegt að nafnið hans væri á þeim lista. Eða eins og Björk Guðmundsdóttir sagði svo skemmtilega þegar hún kynnti hann í upphafi fyrirlestrarins: „Hann er svona heimsmeistari í grænku“.

Salurinn í Þjóðmenningarhúsinu var þéttskipaður í gær, en það sem Paul sagði á erindi við marga fleiri en þá sem þar voru. Þess vegna ætla ég að taka mér það bessaleyfi að birta nokkra punkta sem ég hripaði niður meðan ég hlustaði. Sé einhvers staðar rangt haft eftir er það algjörlega á mína ábyrgð. Vona að mér fyrirgefist framhleypnin. Set þetta í punktaform til að skera niður allan óþarfa:

  • Paul hefur dvalist hérlendis síðustu daga. Hann segist aldrei hafa séð nokkurt land sem hefur eins góða möguleika og Ísland til að takast á við áskoranir 21. aldarinnar.
  • Honum finnst rétt að líta á yfirstandandi fjármálakreppu eins og sjávarskafl (Tsunami) sem hvolfist yfir fólk í veislu. Núna erum við stödd ráðvillt í útfallinu, („Hva? Var ekki partí?“), að leita að einhverju, og áttum okkur kannski ekki á því að auðvitað kemur sjórinn til baka. Þá er betra að vera ofar í fjöruborðinu. Allt sem við gerum til að draga úr útfallinu er dæmt til að mistakast.
  • Maður þarf ekki að vera umhverfissinni til að setja spurningamerki við ofuráherslu Íslendinga á áliðnaðinn. Það er nóg að horfa á þetta út frá hagfræðilegu sjónarmiði.
  • Enginn á ódýrari græna orku en Íslendingar!
  • Olíuframleiðsla í heiminum náði hámarki fyrir 4-5 árum ("Peak Oil"). Verðið á síðasta ári var það hæsta í sögunni, en samt gátu stóru olíufélögin ekki aukið framleiðsluna. Það segir sína sögu um framboð á hráolíu!
  • Á síðustu 8 árum (á valdatíma Bushstjórnarinnar) notuðu jarðarbúar 20% af allri þeirri olíu sem notuð hefur verið frá upphafi! Þetta magn var jafnframt 20% af öllum þekktum olíuauðlindum.
  • Árið 1900 þurfti 1 tonn af olíu fyrir hver 100 tonn sem unnin voru úr jörðu. Árið 1970 var þetta hlutfall komið niður í 30:1. Núna er hlutfallið 3:1. Það verður sífellt erfiðara að ná olíunni. Þegar hlutfallið er komið niður í 1:1 er olíuvinnsla augljóslega orðin tilgangslaus.
  • Olíuverð er núna um 40 dollarar á tunnu og hefur lækkað úr 140 dollurum. Núverandi verð er langt undir raunkostnaði. Það á bara eftir að hækka, ekki bara aftur í 140 dollara, heldur í 200 dollara, eða jafnvel 250 dollara. Þá verður olían orðin jafndýr og Coca Cola.
  • Minnkandi eftirspurn eftir olíu í OECD-ríkjunum (vegna kreppunnar) skiptir nær engu máli, því að eftirspurnin eykst svo hratt í fjölmennustu ríkjum heims!
  • Við erum að nálgast það sem kallað hefur verið "Red Queen Dilemma", sbr. söguna um Lísu í Undralandi. Því hraðar sem maður fer, því hraðar kemst maður ekki neitt.
  • Helmingur af allri raforku í Kaliforníu fer í að dæla vatni. Eftir því sem vatnsskortur eykst þarf að bora dýpri brunna, sem þýðir að þá þarf enn meiri orku til að dæla vatninu.
  • Framleiðsla á kolum mun ná hámarki á næstu 7-8 árum að mati Alþjóðaorkumálastofnunarinnar í París (IEA). IEA eru engin umhverfisverndarsamtök. Þetta eru alþjóðasamtök orkugeirans!
  • Þegar tekið er tillit til alls þessa er augljóst hvílík blessun hvílir á Íslendingum. ("You are blessed, totally blessed")! Spurningin er bara hvernig við ætlum að ákveða hvað við ætlum að gera. Paul hvetur okkur til að láta ekki duga að halda fram skoðunum, heldur leggja fram beinharðar tölur, t.d. frá IEA. Hann orðaði stöðu okkar einhvern veginn svona: „Þið hafið bestu möguleika sem nokkur þjóð í öllum heiminum hefur“.
  • Spurningin er hvernig við viljum flytja orkuna okkar út. Það er ekki góður kostur að flytja hana út í formi óunnins áls. Hlutfallslega mest af öllu áli heimsins fer í að framleiða bjórdósir. Helmingi þeirra er hent þegar búið er að drekka úr þeim. Álpappír er í 2. sæti, flutningatæki (bílar og flugvélar) bara í því þriðja!
  • Það á að hugsa um það til hvers orkan er notuð, hvernig hún skapar mest verðmæti, hvernig hún gerir mest gagn! Viljum við heiðra minningu forfeðranna með því að láta orkuna okkar í að framleiða bjórdósir, sem síðan er hent?
  • Sem dæmi um aðrar framleiðsluvörur sem skapa meiri virðisauka og gera meira gagn má nefna koltrefjar og gler, ekki samt venjulegt rúðugler, heldur hátæknirúðugler sem er sólfangari um leið, gler með þunna sólarfilmu á milli laga.
  • Það er jafn auðvelt að búa til hagkerfi sem býr í haginn fyrir framtíðina og hagkerfi sem stelur frá framtíðinni, ("an economy that heals the future as one that steals from the future").
  • Framleiðsla okkar á áli er dæmi um heimsins mesta sóunarferli.
  • Hvar viljum við vera eftir 30 ár eða 50 ár? Þetta er ekki bara opin spurning. Þetta eru margar spurningar, spurningar á borð við: „Viljum við hreinna loft eða mengaðra loft“? Svörum þessum spurningum fyrst og vinnum okkur svo til baka. Hvað þarf sem sagt til að ná þessum árangri?
  • Breytum áherslunum í fyrirsögnunum og hjá þjóðinni. Gefum út yfirlýsingu til umheimsins um það sem íslenska þjóðin vill! Vinnum þetta neðan frá og upp - úr grasrótinni. Við getum ekki breytt öðru fólki, en við getum breytt okkur sjálfum!
  • Það er gríðarlegur vöxtur í sólarorkuiðnaðinum, eitthvað um 30% á ári. Ísland ætti að vera að framleiða eitthvað af þessum vörum. En við verðum að vita hvað við viljum! Heimurinn er að þróast í átt að grænni orku. Það er bara spurning hver ætlar að taka þátt í því.
  • Það er orðið of seint að treysta á hetjur. Nú þurfum við manneskjur! Við þurfum forystu sem þjappar okkur saman, án þess að gera okkur öll eins. Hættum að einblína á sérstöðu okkar hvers og eins, leyfum okkur að vinna saman, ekki á morgun, heldur strax í dag! Við höfum ekki tíma til að dreifa kröftum okkar.
  • Því ekki að gera eitthvað sem getur orðið öðrum til eftirbreytni!?

Hvet ykkur til að skoða heimasíðu Paul Hawken, http://www.paulhawken.com/. Þið getið líka prófað að „gúgla“ manninn ef þið viljið átta ykkur betur á því hver hann er. Svo var hann líka í Silfri Egils í dag, sjá http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4440910 (aftast í þættinum).

Takk Björk og nattura.info fyrir að bjóða Paul Hawken til landsins! Gærdagurinn var virkilega uppörvandi.

Birt:
14. desember 2008
Höfundur:
Stefán Gíslason
Tilvitnun:
Stefán Gíslason „Hvað sagði Paul Hawken í gær?“, Náttúran.is: 14. desember 2008 URL: http://nature.is/d/2008/12/15/hvao-sagoi-paul-hawken-i-gaer/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 15. desember 2008

Skilaboð: