Plöntur eru ýmist villtar eða framleiddar, þ.e. komið á legg með sáningu fræja eða gróðursetningu t.a.m. stiklinga. Þær jurtir sem eru á boðstólum hérlendis eru ýmist villtar, fluttar inn eða framleiddar hérlendis. Eftirlit með innflutningi fræja, lifandi jurta, afskorinna blóma og áburðar er í höndum Matvælatofnunar. Hlutverk stofnunarinnar er að hindra að sjúkdómar eða meindýr sem berist til landsins gætu valdið tjóni á innlendri plönturæktun. Lífræn fræ og lífrænt ræktaðar plöntur er nú hægt að fá frá mörgum framleiðendum og eftirspurnin eykst stöðugt.

örbylgjuofn frystivara kælivara eldhúsborð eldhúsborð vaskur blóm vefnaðarvörur frystir ísskápur uppþvottur bakaraofn og vifta bökunarofn og vifta hreinlætisvörur blöndunartæki rafmagnsinnstunga matvinnsluvél kryddhilla eldhúsinnrétting brauð pottar og pönnur þurrvara kaffi & te matreiðslubók eldhúsið Lífræn ræktun byggist á því að ekki eru notuð lyf og varnarefni í jarðveginn og einungis er notaður lífrænn áburður. Umhverfisáhrif slíkrar framleiðslu eru mun jákvæðari en við hefðbundna ræktun. Vottunarstofan Tún er meðlimur í IFOAM og sér um að taka út lífræna vottun á landsvæðum og ræktun hér á landi.

Þar sem erfitt er að forðast erfðabreytt afbrigði plantna og fræja á Íslandi  og enn ekki skilda að merkja eða upplýsa neytendur um að um erfðabreyttar lífverur/framleiðslu sé að ræða, hefur áhugi vaknað á því að lýsa heilu sveitirnar „Svæði án erfðabreyttra lífvera“. Í haust mun þó ný reglugerð um merkingu og rekjanleika á erfðabreyttum matvælum öðlast gilda.

Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragarði er „Svæði án erfðabreyttra lifvera sem og Vallanesbýlið, heimili Móður Jarðar í Fljótsdalshéraði.

Birt:
17. júní 2011
Höfundur:
Náttúran
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Náttúran „Blóm á heimilinu“, Náttúran.is: 17. júní 2011 URL: http://nature.is/d/2009/06/26/blom-heimilinu/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 26. júní 2009
breytt: 17. júní 2011

Skilaboð: