Umhverfisráðuneytið boðar til opins fundar um viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir gróðurhúsalofttegunda og fyrirhugaðar breytingar á því. Fundurinn verður mánudaginn 3. nóvember nk. kl. 14:00-16:00 í Sal B á Hótel Sögu.

Hér á landi er nú unnið að innleiðingu tilskipunar Evrópusambandsins um viðskiptakerfið. Flug mun falla undir gildissvið tilskipunarinnar frá og með 1. janúar 2012 og gert er ráð fyrir að ári síðar falli fleiri tegundir starfsemi þar undir, þ.á.m. áliðnaður.

Thomas Bernheim, sérfræðingur hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, flytur erindi um viðskiptakerfið og endurskoðun þess. Að því loknu verður efnt til pallborðsumræðna með þeim Pétri Reimarssyni, Samtökum atvinnulífsins, Kristínu Lindu Árnadóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar, Árna Finnssyni, formanni Náttúruverndarsamtaka Íslands og Óttari Frey Gíslasyni frá EFTA.

Fundurinn fer fram á ensku. Þátttaka tilkynnist með tölvupósti á postur@umhverfisraduneyti.is.

Mynd af Rapidgrowthmedia.com
Birt:
28. október 2008
Tilvitnun:
Umhverfisráðuneytið „Fundur um viðskipti með losunarheimildir“, Náttúran.is: 28. október 2008 URL: http://nature.is/d/2008/10/28/fundur-um-vioskipti-meo-losunarheimildir/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: