Umhverfisvæn ferðamennska hefur þróast mikið á undanförnum árum. Ágangur ferðamanna getur verið ákaflega umhverfisspillandi ef ekki er hugsað um hvernig best er tekið tillit til náttúrunnar. Þetta getur átt við hvað sem er því allt sem við gerum hefur einhver áhrif á veröldina í kringum okkur.

Af hverju að fara langt þegar þú getur notið góðs sumarfrís í næsta nágrenni. Alltof margir ferðast um hálfan hnöttinn en gleyma að ferðast um sitt eigið land. Útivera er ein skemmtilegasta leiðin til að halda sér og fjölskyldu sinni heilbrigðri og léttri í lund. Ferðalög þurfa ekki að vara lengi en það getur verið yndisleg upplifun fyrir fjölskylduna að komast aðeins út fyrir borgina eða bæinn og út í náttúruna. Keyrið varlega og njótið þess að skoða út um gluggan það sem fyrir augum ber. Áður en þið leggið af stað er ráðlagt að gera lista yfir hluti sem þarf að taka með, staði sem á að sjá o.fl.

Best er að reyna að takmarka hluti sem þið takið með. Ráðlegt er að notast aðeins við fjölnota umbúðir fyrir matvæli og hluti. Ef að vaska þarf upp eða þvo föt úti í náttúrunni er best að notast við umhverfismerkt þvottaefni og uppþvottalög. Reynið að þvo ekki mikið upp úr ám eða lækjum, oft er hægt er að notast við vaska á tjaldstæðum.

Mikilvægt er að sýna náttúrunni virðingu, í því felst að skilja ekki eftir rusl á jörðinni, best er að taka það heldur með ykkur í bílinn og henda því svo í næsta ruslagám. Einnig er mikilvæg að skilja náttúruna við sig eins og maður kom að henni. Í ferðalaginu er mikilvægt að reyna að nota bílinn sem minnst, hægt er að fara í gönguferðir eða jafnvel taka reiðhjól með í ferðalagið.

Ef að fara á í gönguferðir er best að hafa í huga að ganga eftir merktum gönguleiðum, annað getur verið slæmt fyrir jarðveginn, þú gætir lent inná einkalóð eða lent í ógöngum eða hættu. Sama á við um bíla. Mikilvægt er að keyra aldrei utanvega, það er  vanvirðing við náttúruna, hjólför geta rist jarðveginn djúpt og eyðilagt gróður.

Ef þú ferðast á suðlægar slóðir leggur Náttúran til að þú hafir eftirfarandi í huga þegar þú kemur á áfangastað:

  • Slökkva skal á ljósi og loftkælingu þegar þú ferð út úr hótelherberginu.
  • Sparaðu vatnið.
  • Þú þarft ekki að láta skipta um rúmföt á hverjum degi.
  • Láttu hótelið vita af óskum þínum í því efni.
  • Ef þú ferðast innan landsins, reyndu að ganga og hjóla sem mest.
  • Víðast hvar er hægt að fá reiðhjól leigð.
  • Einnig getur þú tekið strætó og lestir eru almennt umhverfisvænni en bílar.
  • Nýttu þér hópferðir sem að ferðaskrifstofur bjóða upp á.
  • Flokkaðu úrgang á hótelinu að svo miklu leyti sem það er hægt.
  • Keyptu minjagripi sem eru keyptir á staðnum en ekki kaupa vörur sem er bannað að flytja úr landi eða vörur sem búnar eru til úr dýrum eða jurtum í útrýmingarhættu.
  • Ekki kaupa fílabein, mahoný eða nashyrningahorn.
  • Gistu á litlum gistiheimilum en ekki á stórum alþjóðlegum hótelum.
  • Þannig styður þú við bakið á íbúunum sjálfum.
  • Slepptu því að gista á hóteli með sundlaug, þú getur alltaf farið á ströndina.
  • Farðu eftir þeim umgengnisreglum sem gilda á ströndinni.
  • Um Bláfánaströnd getur verið að ræða.
  • Farðu eftir þeim umgengnisreglum sem gilda á hótelinu.
  • Veldu umhverfismerkt hótel ef hægt er.
Birt:
25. júlí 2013
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir „Ferðalög“, Náttúran.is: 25. júlí 2013 URL: http://nature.is/d/2007/06/21/feralg/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 21. júní 2007
breytt: 20. maí 2014

Skilaboð: