Að fara í réttir var fastur liður í lífi flestra Íslendinga, fyrir ekki svo löngu síðan. Við réttir hittast sveitungar og fagna því að fé sé komið af fjalli og stutt í ný slátrað. Oft er kátt í réttunum og gaman fyrir börn og fullorðna að upplifa óðagotið og lætin.

„Oft er miðað við að réttað sé föstudag eða fimmtudag í 21. viku sumars. Sumstaðar er þó miðað við ákveðinn mánaðardag“*

Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunautur Bændasamtaka Íslands, hefur tekið saman lista um fjár- og stóðréttir haustið 2009. Almennt má segja að réttir séu á svipuðum tíma og í fyrra.

*Heimild: Saga daganna eftir Árna Björnsson.

Sjá lista yfir réttir haustið 2009 á vef Bændasamtakanna.

Birt:
29. ágúst 2009
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Réttarfréttir 2009“, Náttúran.is: 29. ágúst 2009 URL: http://nature.is/d/2009/08/29/rettarfrettir-2009/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: