Vegna stigvaxandi þrýstings frá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum, Landbúnaðarnefnd Evrópusambandsins, Samtökum fjárfesta og fjölda annarra hagsmunaaðila, vina vandamanna og velunnara, hefur verið ákveðið að blása enn einu sinni til Sauðamessu í Borgarnesi. Sauðamessan verður eins og undanfarin ár haldin í Skallagrímsgarði í Borgarnesi þ. 17. október n.k. og hefst kl. 13:30.

  • Fjárrekstur í gegnum Borgarnes- Réttarstemmning.
  • Ærlegt handverk og fleira spennandi í markaðstjöldunum.
  • Heitt kakó, kaffi og rjómavöfflur.
  • Bakkabræður og Bakkasystur mæta á svið.
  • Sveitastrákar sýna línudans.
  • Kappát, valinkunnir matmenn stíga á stokk.
  • Félag sauðfjárbænda í Borgarfjarðarhéraði veitir viðurkenningar.
  • Eva Margrét og Karina.
  • Siggi bóndi.
  • Guðmundur Steingríms
  • Fegurðarsamkeppni hrúta af Mýrum
  • Leikur grín og gaman

Fjallakóngur og réttarstjóri er Jón Eyjólfsson á Kópareykjum.

Þema dagsins eru sauðalitirnir og íbúar Borgarness eru hvattir til að skreya hús sín og garð - allir sem ullarvettlingi valda.

Sjá nánar á vef Sauðamessu.

Mynd: Í réttunum á Sauðamessu 2008, ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
13. október 2009
Uppruni:
Sauðamessa
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Sauðamessa 2009 - ærleg skemmtun fyrir almúgann“, Náttúran.is: 13. október 2009 URL: http://nature.is/d/2009/10/13/sauoamessa-2009-aerleg-skemmtun-fyrir-almugann/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: