Varðandi haustþing Framtíðarlandsins og fréttir af mögulegu framboði eða undirbúningi lista hefur undirrituð falast eftir eftirfarandi upplýsingum hjá forsvarsmönnum Framtíðarlandsins:
-

  1. Hvenær hyggst bráðabirgðastjórn Framtíðarlandsins efna til stjórnarkosninga í félaginu?
  2. Hvernig geta skráðir félagar afskráð sig, líki þeim ekki framboðshugmyndirnar af einhverjum ástæðum?
  3. Hvernig hugsar Framtiðarlandið sér að fara með umboð 2.500 skráðra félaga í framtíðinni, án samráðs við þá?
  4. Hverjir eru í undirbúningsnefnd Framtíðarlandsins um lista til Alþingiskosninga?
  5. Hvernig starfar Framtíðarlandið á bak við tjöldin?
  6. Hvenær fá félagsmenn Framtíðarlandsins að frétta hvað er að ske og hvað þeir geta gert?
  7. Af hverju var mögulegt framboð sem og stefna „flokksins“ Framtíðarlandið ekki borin undir haustþingið?

-
Sent til Framtíðarlandsins kl. 10:00 þ. 31.10. 2006. Svör birtast um leið og þau berast.
Svar var að berast frá Andra Snæ Magnasyni, hann svarar á sína ábyrgð.

Birt:
31. október 2006
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Spurningar til Framtíðarlandsins“, Náttúran.is: 31. október 2006 URL: http://nature.is/d/2007/03/19/sp_framtidarlands/ [Skoðað:29. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 19. mars 2007
breytt: 16. maí 2007

Skilaboð: