Vínberjarækt í BirkihlíðVínber þroskast ekki úti hér á landi. Þegar sjónvarpskonan Sigríður Arnardóttir sá vínberin í gróðurhúsinu mínu minntist hún annarrar heimsóknar, til Telmu Ingvarsdóttur í Austurríki. Þar sem þær sátu og spjölluðu hafði Telma fært henni ferskan, heimapressaðan vínberjasafa. Þegar svo leið á daginn og viðtalið var vel á veg komið opnaði Telma kampavínsflösku og bætti út í safann þeim til yndisauka. Fæst eigum við litla handhæga vínberjapressu en þær eru einnig góðar til að pressa jurtir fyrir seyði og olíur. En ef búinn er til vínberjasafi er upplagt að gera vínberjahlaup handa börnunum. Ávaxtahlaup með hnetusmjöri ofan á brauð var þjóðarréttur í Bandaríkjunum þegar ég bjó þar. Aðferðin væri sú sama og við krækiberjahlaup. Spurning hvort maður sýður vínberin til að sprengja úr þeim safann eða pressar þau. Þau eru sætari en krækiber og þurfa minni sykur en sama magn af sultuhleypi. Hlaup getur varla mistekist, það má bræða það upp aftur og þykkja ef það er of þunnt.

Heit berja- og ávaxtasósa
Þegar ekki er hægt að torga meiru af ferskum berjum er gott að búa til heita ávaxtasósu. Hún er áreiðanlega frönsk en uppskriftin er svo sem engin. Ég tek til þá ávexti eða ber sem ég á, en vil gjarnan hafa minnst þrjár tegundir og þær þurfa að vera af þeirri gerð sem þýðir að sjóða. Vatnsmelóna passar ekki hér og varla banani en þurrkaða ávexti má nota, útvatnaða eða smátt brytjaða. Ég set örlítið af vatni, saft eða eplasafa í pott og brytja fyrst þann ávöxtinn sem þarf lengsta suðu, eins og epli, út í pottinn og læt sjóða smástund. Síðan byrjar niðurtalning, næst fer það sem þarf aðeins styttri suðu og svo koll af kolli og síðast það sem ekki þarf nema rétt að sjóða upp á, eins og bláber eða rifsber. Þetta má þykkja með sultu eða matskeið af maisenamjöli, sem er hrært út í sama vökva og byrjað var með. Þessi uppskrift getur ekki mistekist, ef sósan er of þykk, þynna bara, ef hún er of þunn má þykkja aftur, of súr þá meiri sykur, of sæt nota sítrónu. Það eina sem getur komið fyrir er að hún brenni við en þá er bara að reyna að hreinsa pottinn og gleyma því. Allt er leyfilegt, eins og að setja í ögn af líkjör eða negulnagla. Má bera fram með búðingi, ís, kökubotni eða pönnukökum.

Úr Ætigarðinum - handbók grasnytjungsins, eftir Hildi Hákonardóttur. Bókin er fáanleg hér á Náttúrumarkaðinum.

Ljósmynd: Vínberjaklasa í gróðurhúsinu í Birkihlið, ljósm. Guðrún Tryggvadóttir.

Birt:
7. september 2014
Tilvitnun:
Hildur Hákonardóttir „Vínber“, Náttúran.is: 7. september 2014 URL: http://nature.is/d/2007/11/09/vnber/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 9. nóvember 2007
breytt: 7. september 2014

Skilaboð: