Skólagarðarnir hafa að markmiði að kenna börnum umgengni við náttúruna og ræktun matjurta. Hverjum einstaklingi er úthlutað garði og fræi, útsæði og grænmetisplöntum til ræktunar. Með börnunum starfa leiðbeinendur við ræktunina. Það er mikilvægt að börnin mæti vel og séu virk.

Fyrstu tvær vikurnar fara einkum í gróðursetningu og sáningu. Þá tekur við tímabil þar sem börnin læra að hlúa að plöntunum t.d. með vökvun og illgresishreinsun en aðaluppskerutíminn er síðan í kringum 20. ágúst.

Megintilgangur skólagarðanna er að kenna börnunum að rækta matjurtir en öðru hvoru eru farnar ferðir. Haldnar eru sumarhátíðir í hverjum garði með grilli og ýmsum skemmtunum og áhugasamir og framúrskarandi ræktendur verðlaunaðir.

Skólagörðunum lýkur með uppskeruhátíð þar sem boðið er uppá afurðir garðsins og börnunum er afhentar viðurkenningar fyrir sumarstarfið. Starfsemin hefst 2. júní og lýkur um 20. ágúst.

Staðsetning skólagarða í Reykjavík: 

  • Þorragötu í Skerjafirði   
  • Holtavegi í Laugardal 
  • Fossvogi við Bjarmaland      
  • Vestan Árbæjarsafns 
  • Við Jaðarsel        
  • Kotmýri við Logafold       
  • Gorvík við Strandveg

Sjá vef Skólagarða Reykjavíkur. Skólagarðar eru einnig starfræktir víða um land.

Mynd; Börn í Skólagarðinum í Fossvogi, ljósmynd: Vala Smáradóttir.
Birt:
2. júní 2009
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Skólagarðarnir byrja í dag“, Náttúran.is: 2. júní 2009 URL: http://nature.is/d/2009/06/01/skolagaroarnir-byrja-i-dag/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 1. júní 2009

Skilaboð: