Tölvur eru nauðsynleg tæki í hverju fyrirtæki og varla fyrirfinnst tölvulaust heimili á Íslandi í dag. Tölvur eru einfaldlega alls staðar og gera allt fyrir alla.

Þó að tölvur séu stórkostleg tæki að flestra mati hefur tölvuframleiðslu geigvænlega neikvæð umhverfisáhrif. Bæði vegna þeirra náttúrauðlinda sem framleiðsla hráefnis í tölvurnar hefur í för með sér, flutnings efnis heimsálva á milli og síðan framleiðsluferlið við gerð tölvunnar sjálfrar en hún orsakar aðra röð af neikvæðum umhverfisáhrifum.

Sem dæmi má nefna að við framleiðslu 32 megabæta tölvukubbs þarf 72 kíló af kemískum efnum, 700 grömm af hreinum gastegundum, 32 kíló af vatni og 1,2 kíló af jarðefnaeldsneyti. Eiturefni úr tölvum geta síðan eftir líftíma þeirra lekið niður í jarðveg og grunnvatn, og ef fólk kemst í snertingu við þau, valda þau skaða á taugakerfi þeirra, innkirtlakerfi, líffærum og geta haft neikvæð áhrif á þroska heilans.

Ef við lítum aðeins á orkunotkun í kringum tölvur þegar þær eru komnar í hendur neytenda lítur dæmið þannig út. Um 9% af orku fyrirtækja fer í að halda tölvunum gangandi. Í Bandaríkjunum eru um 180 milljón tölvur í notkun í dag. Ef við yfirfærum þær tölur á Ísland lætur nærri að tæplega ein talva sé á hvert mannsbarn. Hugsnalega er talan þó enn hærri hér á landi.

Stór hluti eða um 30% af þeirri orku sem tölvur og fylgihlutir nota nýtist ekki í neitt annað en að hita frá sér, oft í óþökk og til ama. Til að minnka neikvæð áhrif af tölvunotkun er ýmislegt hægt að gera. Í fyrsta lagi er ónauðsynlegt að fjárfesta í tölvu sem ekki gerir neitt annað en sú sem fyrir er, s.s. „af hverju að kaupa nýja ef sú gamla nægir fyrir það sem maður þarf að gera“?

Varðandi val á tölvum ræður alltaf mestu hvort að tækið uppfylli tæknilegar þarfir (eða ímyndaðar þarfir) kaupandans. Í náinni framtíð má reikna með því að umhverfisstefna og ábyrgð framleiðanda eigi eftir að eiga stóran þátt í kaupákvörðunum neytenda.

Ef að við neytendur förum fram á að fyrirtæki sýni ábyrgð gera þau það, ef ekki sleppa þau því. Það er því í höndum okkar neytenda hvað fyrirtækin aðhafast í umhverfismálum.

Nokkrir tölvuframleiðendur t.a.m. Fujitsu Siemens hafa umhverfismerkið Svaninn á framleiðslu sinni og tölvurnar eru framleiddar skv. ISO 14001 umhverfisstaðlinum. Tölvur með Svansmerkinu uppfylla strangar kröfur um magn þungmálma, samsetningu plastefna, framleiðsluferli, orkunotkun, möguleika á endurvinnslu o.fl.

Orkumerki segja til um hvort að tölva, prentari eða ljósritunarvél er orkusuga eða ekki. Evrópska orkumerkið og Energy Star hjálpa okkur að finna sparneytnustu tækin. TCO merking er sænskur umhverfis- og orkustaðall sem er á vegum sænskra stéttarfélaga.

Birt:
16. maí 2014
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Tölva“, Náttúran.is: 16. maí 2014 URL: http://nature.is/d/2007/06/26/skrifstofan-tlva/ [Skoðað:19. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 26. júní 2007
breytt: 13. júní 2014

Skilaboð: