Simon Dale er fjölskyldufaðir og arkítekt frá Wales. Simon ákvað að byggja hús fyrir fjölskyldu sína og fékk hann hjálp frá tengdaföður sínum. Það tók um 4 mánuði að byggja húsið. Húsið er þó ekki eins og venjulegu húsin sem við erum svo vön að sjá í kringum okkur. Húsið minnir á lítið hobbitahús. Framkvæmdirnar kostuðu ekki nema 3.000£ eða um 550.000 kr.
Það sem er öðruvísi við þetta hús er að það var byggt með hámarks tilliti til umhverfisins og gefur fjölskyldunni tækifæri að lifa í fullkomnu jafnvægi við náttúruna. Húsið var byggt úr náttúrulegum hráefnum til að koma í veg fyrir að húsið myndi fyllast af alls konar krabbameinsvaldandi eitri sem er því miður raunin á flestum nútímaheimilum.

Nokkur atriði varðandi hönnun og byggingu hússins:

  • Grafið var í hlíð svo að sjónrænu áhrifin yrðu sem minnst.
  • Steinarnir og drullan sem fengust eftir að grafað var í hlíðina voru notaðir til að halda uppi veggjum og öðru.
  • Viðurinn var fenginn úr skóglendi umhverfis lóðina.
  • Hey er notað í gólfin, veggina og þakið fyrir einstaklega góða einangrun.
  • Kalk-gifs er notað í staðinn fyrir sement þar sem það andar vel og lítil orka var notuð við framleiðslu efnisins.
  • Endurunninn viður var notaður í gólfin.
  • Allt sem hugsanlega gæti vantað í framkvæmdirnar er hægt að finna á ruslahaug einhversstaðar.
  • Viðarofn er notaður til kyndingar.
  • Ísskápurinn er kældur þannig að köldu lofti er beint upp neðanjarðar frá.
  • Gluggi á þakinu gerir sólinni kleift að skína inn í húsið.
  • Sólarsellur gefa húsinu rafmagn fyrir lýsingu, tónlist og tölvunotkun.
  • Allt vatnið kemur frá læk sem er rétt hjá húsinu.

Í dag býr Dale fjölskyldan þó ekki í sama húsinu því þau hafa hafist handa við að byggja nýtt umhverfisvænt og sjálfbært hús á lóð fyrsta umhverfisvæna þorpsins í Wales (einnig betur þekkt sem “low impact” ecovillage). Hægt er að fá nánari upplýsingar og myndir á vef fjölskyldunnar, sem er www.simondale.net/house/index.htm

Mynd: Innan úr húsinu. Mynd tekin af vef www.simondale.net

Birt:
22. september 2011
Tilvitnun:
Móna Róbertsdóttir Becker „Umhverfisvænt og sjálfbært hús í Wales“, Náttúran.is: 22. september 2011 URL: http://nature.is/d/2011/09/22/umhverfisvaent-og-sjalfbaert-hus-i-wales/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: