Landvernd, Fuglavernd og Náttúruverndarsamtök Íslands lýsa yfir stuðningi við þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að hlífa Teigsskógi og leggja til vegagerð eftir svokallaðri D-leið í Gufudalssveit með göngum undir Hjallaháls. Þessi leið hefur verið samþykkt af Skipulagsstofnun og umhverfisráðherra og því er ekkert því til fyrirstöðu að ráðast í hana og bæta þannig strax úr brýnni þörf Vestfirðinga á betri samgöngum með láglendisvegi.

Með þessari úrslausn yrði komið í veg fyrir þau miklu náttúrspjöll sem myndu hljótast af leið B um óspillta náttúru, m.a. eftir Teigsskógi endilöngum og yfir eyjar og sker í mynni Djúpafjarðar og Gufufjarðar í nágrenni tveggja arnarsetra.

Ofangreind samtök telja óréttlætanlegt að fórna þessum náttúruverðmætum sem eru á náttúrminjaskrá og falla undir lög um verndun Breiðafjarðar þar eð aðrar leiðir eru fyrir hendi. Göng undir Hjallaháls eru að öllum líkindum ódýrari en leið B þegar búið er að taka tillit til aukakostnaðar, jaðarkostnaðar og umhverfiskostnaðar.

Ljósmynd: Birki, Guðrún A. Tryggvadóttir.

Birt:
22. september 2011
Höfundur:
Árni Finnsson
Tilvitnun:
Árni Finnsson „Ályktun Fuglaverndar, Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands vegna vegagerðar í Gufudalssveit“, Náttúran.is: 22. september 2011 URL: http://nature.is/d/2011/09/22/alyktun-fuglaverndar-landverndar-og-natturuverndar/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: