Ferðamálastofa auglýsir eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna fyrir árið 2011. Verðlaunin hefur stofnunin veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi.

Ferðaþjónustan byggir afkomu sína að miklu leyti á umhverfislegum gæðum og er það trú Ferðamálastofu að verðlaunin geti orðið hvatning til ferðaþjónustuaðila og viðskiptavina þeirra að huga betur að umhverfi og náttúru og styrkja þannig framtíð greinarinnar.

Hverjir koma til greina sem verðlaunahafar?
Allir þeir sem tengjast ferðamálum og láta sig umhverfismál varða og vinna markvisst að því að viðhalda jafnvægi milli efnahagslegra, náttúrlegra og félagslegra þátta. Það geta verið einstaklingar, fyrirtæki eða félagasamtök.

Tilnefningar sendist á skrifstofu Ferðamálastofu, Geirsgötu 9, 101 Reykjavík, merktar Umhverfisverðlaun eða með tölvupósti á umhverfisstjóra stofnunarinnar, Svein Rúnar Traustason, á netfangið sveinn@icetourist.is fyrir 14. október næstkomandi.

Skjal til útfyllingar
Hér að neðan er skjal með spurningum og atriðum sem þurfa að vera í lagi þegar ferðaþjónustuaðilar eru tilnefndir.

Ljósmynd: Sogamelar, ljósm. Árni Tryggvason.

Birt:
16. september 2011
Höfundur:
Ferðamálastofa
Tilvitnun:
Ferðamálastofa „Óskar eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna Ferðamálastofu 2011“, Náttúran.is: 16. september 2011 URL: http://nature.is/d/2011/09/15/oskar-eftir-tilnefningum-til-umhverfisverdlauna-fe/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 15. september 2011
breytt: 16. september 2011

Skilaboð: