Fimmtudaginn 22. september standa Framkvæmdaráð Snæfellsness, Náttúrustofa Vesturlands og Borgarbyggð fyrir ráðstefnu um umhverfismál í Borgarnesi undir yfirskriftinni Umhverfisvottun Vesturlands.

Starfsemi sveitarfélaganna á Snæfellsnesi er umhverfisvottuð samkvæmt staðli samtakanna EarthCheck. Í fyrrahaust var samþykkt ályktun á aðalfundi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um að skoða umhverfisvottun fyrir Vesturland allt með Snæfellsnes sem fyrirmynd. Tilgangur ráðstefnunnar er að fjalla um stöðu umhverfismála og kynna þessa hugmynd fyrir forsvarsmönnum sveitarfélaganna á Vesturlandi og öðrum hagsmunaaðilum og áhugasömum.

Bent verður á mikilvægi umhverfisverndar og hvað hægt sé að gera til þess að sporna gegn þeirri neikvæðu þróun sem átt hefur sér stað síðustu áratugi. Sérstaklega verður skoðað hversu stórt hlutverk sveitarfélög leika þegar kemur að umhverfismálum.

Ráðstefnan verður haldin í Hjálmakletti, ráðstefnusal mennta- og menningarhúss Borgarbyggðar í Borgarnesi og stendur frá kl. 11:00 - 16:30.

Dagskráin verður kynnt innan skamms.

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!

Sjá viðburðinn á Facebook.

Birt:
6. september 2011
Tilvitnun:
Theódóra Matthíasdóttir „Ráðstefna um umhverfisvottun Vesturlands“, Náttúran.is: 6. september 2011 URL: http://nature.is/d/2011/09/06/radstefna-um-umhverfisvottun-vesturlands/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 8. september 2011

Skilaboð: