Skipulagsstofnun heldur málstofu um miðhálendi Íslands fimmtudaginn 29. mars 2012 kl. 13.00 til 16.00 á Hilton Reykjavik Nordica, Suðurlandsbraut 2 í Reykjavík. Málstofan er hluti af vinnu við mótun landsskipulagsstefnu og dagskráin er eftirfarandi:

  1. Ferðamennska á miðhálendi Íslands.
  2. Hlutverk umhverfismats.
  3. Áætlanir ríkisins á landsvísu, hvað eru þær að segja um miðhálendið?
  4. Aðalskipulagsáætlanir sveitarfélaganna og miðhálendið.
  5. Kynning og umræður um tillögur að stefnumörkun um miðhálendið.

Fundurinn er opinn og öllum er heimil þátttaka en tilkynningar um þátttöku sendist á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is í seinasta lagi 28. mars.

Ljósmynd: Hálendið, á Kili, Guðrún A. Tryggvadóttir.

 

Birt:
21. mars 2012
Höfundur:
Skipulagsstofnun
Uppruni:
Skipulagsstofnun
Tilvitnun:
Skipulagsstofnun „Málstofa um miðhálendi Íslands“, Náttúran.is: 21. mars 2012 URL: http://nature.is/d/2012/03/21/malstofa-um-midhalendi-islands/ [Skoðað:28. mars 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: