Í Skaftholti í Gnúpverjahreppi er stundaður lífrænn og lífefldur (bíódýnamískur) búskapur. Þar hefur ennfremur verið unnið mikið og merkilegt meðferðarstarf í 31 ár. Skaftholt er sjálfum sér nægt með búsafurðir allar. Þar lifa og starfa nú um 20 manns. Mikil uppbygging hefur átt sér stað en þeir einstaklingar sem búa í Skaftholti þurfa friðsælt umhverfi og mikilvægur þáttur í meðferðarstarfinu er róandi nærvera Þjórsár og hinnar stórbrotna náttúru allt um kring.

Laugardaginn 27. ágúst verður opinn dagur í Skaftholti frá kl. 14:00 til 17:00. Lífræn grænmetis og veitingasala og allir hjartanlega velkomnir.

Þú getur séð upplýsingar um Skaftholt og staðsetninguna hér á Grænum síðum.

Birt:
20. ágúst 2011
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Opinn dagur í Skaftholti “, Náttúran.is: 20. ágúst 2011 URL: http://nature.is/d/2011/08/20/opinn-dagur-i-skaftholti/ [Skoðað:18. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: