Grænt Íslandskort er samvinnuverkefni Náttúran.is og alþjóðlega verkefnisins Green Map Systems™ og Háskóla Íslands. Græna Íslandskortið byggist á flokkunarkerfi Green Map og umfangsmikilli forvinnu Náttúran.is við skráningar aðila á Grænar síður og slær smiðshöggið á kortlagningu vistænna kosta í viðskiptum og ferðamennsku á Íslandi. Kortið birtist á íslensku á Náttúran.is og á ensku á Nature.is í samhengi við það gríðarlega magn af umhverfisupplýsingum og vottunartengingum sem þegar eru fyrir hendi á vefnum. Öllum er frjálst að fá skráningu svo framarlega sem að starfsemin byggist á viðurkenndum vottunum eða aðferðafræði enda ekki ætlunin að græný vo neinn sem ekki hefur unnið fyrir því. Tilgangur kortsins er að gefa yfirsýn yfir þá fjölmörgu umhverfisvænu kosti sem fyrir eru í landinu og hvetja fjólkt til að nýta sér þá og styðja frekar þau fyrirtæki sem vinna á umhverfismeðvitaðan hátt. Þeir sem vilja skrá sig á græna kortið láti vita af sér á: nature@nature.is. Skráning er ókeypis!

Sjá hér dæmi um vottaða aðila sem skráðir eru á græna kortið, kort opið á aðila með Green Globe Certified vottun. Smellið á þann aðila sem þið viljið sjá og smllið á „sjá á korti“ til að sjá staðsetningu á landinu. Merkin til hægri við listaða aðila gefa til kynna hvaða vottun er fyrir hendi en með því að renna yfir merkið fást upplýsingar um hvað merkið þýðir.
Aðrir aðilar á grænum síðum Náttúrunar eru að detta inn á græna kortið þessa dagana.

Birt:
28. júní 2008
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Guðrún Arndís Tryggvadóttir „Græna kortið að fæðast“, Náttúran.is: 28. júní 2008 URL: http://nature.is/d/2008/06/26/graent-islandskort/ [Skoðað:16. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
skrifað: 26. júní 2008
breytt: 28. júní 2008

Skilaboð: