Hið norræna fatahönnunarfélag, sem Fatahönnunarfélag Íslands er í, stendur fyrir verkefninu Nordic Initiative, Clean and Ethical. Markmið verkefnisins er að stuðla að náttúrulegum framleiðsluháttum innan tískuiðnaðarins og lýkur verkefninu með hönnunarkeppni sem haldin verður í tengslum við umhverfisráðstefnuna í Kaupmannahöfn í þessari viku.

Fjórir íslenskir hönnuðir taka þátt í verkefninu, þar á meðal er fatahönnuðurinn Rebekka Jónsdóttir sem segir verkefnið hafa vakið hana til umhugsunar um umhverfisvæna fatahönnun. Rebekka útskrifaðist sem fatahönnuður frá Fashion Institute of Design and Merchandising í Los Angeles í fyrra. Hún flutti heim til Íslands í vor og bauðst henni að taka þátt í Reykjavík Showroom stuttu síðar en það er sölusýning sem haldin er ár hvert og gefur ungum fatahönnuðum tækifæri til að kynna vörur sínar. "Búslóðin mín og saumavélin voru ekki enn komin til landsins þegar þetta var þannig að ég reddaði mér með því að prjóna litla línu sem samanstóð aðallega af peysum. Ég hugsaði með mér að ef ég kæmi mér ekki inn í samfélag fatahönnuða hér heima strax þá þyrfti ég að bíða í heilt ár fram að næsta Showroomi. Ég var mjög fegin þeirri ákvörðun því í kjölfarið bauðst mér að taka þátt í þessu verkefni," útskýrir Rebekka.

Í september var hönnuðunum boðið til Danmerkur. Þar sátu þeir ýmis námskeið þar sem umhverfisvæn framleiðsla var kennd. Hver hönnuður fær síðan frjálsar hendur við hönnun á tveimur klæðasamsetningum, en efnið sem unnið er úr þarf að mestu að vera umhverfisvænt. "Mér fannst verkefnið erfitt að því leytinu til að ég fékk ekki litina sem mig langaði að fá. Ég endaði á því að lita efnið sjálf og gerði um ellefu litaprufur áður en ég varð sæmilega sátt. En efnin sem við fengum til að vinna úr voru æðisleg." Rebekka segist vel geta hugsað sér að halda áfram að vinna með umhverfisvæn efni í framtíðinni og telur að Norðurlöndin geti skapað sér sérstöðu með því að sérhæfa sig í umhverfisvænni hönnun.

Keppnin fer fram 9. desember og segist Rebekka vera nokkuð stressuð fyrir sýninguna. "Ég fékk spennufall eftir að hafa sent flíkurnar frá mér í byrjun síðustu viku og ég er bæði spennt og mjög stressuð fyrir keppnina sjálfa."

Birt:
9. desember 2009
Höfundur:
sm
Uppruni:
Fréttablaðið
Tilvitnun:
sm „Keppir í umhverfisvænni fatahönnun“, Náttúran.is: 9. desember 2009 URL: http://nature.is/d/2009/12/09/keppir-i-umhverfisvaenni-fatahonnun/ [Skoðað:20. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: