Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Dominique Marbouty, forstjóri Reiknimiðstöðvar evrópskra veðurstofa ECMWF, munu undirrita aðildarsamning um fulla aðild Veðurstofu Íslands að ECMWF í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu, bókasal, miðvikudaginn 9. mars kl. 9:30.

Að því tilefni býður Veðurstofa Íslands til kynningar á starfsemi miðstöðvarinnar og þýðingu hennar fyrir Ísland. Kynningin fer fram á sama stað í kjölfar undirritunarinnar, kl. 10 til 12. Boðið er upp á kaffiveitingar.

Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa, eftir að hafa verið aukaaðili frá því á 8. áratug síðustu aldar. Með fullri aðild Íslands að ECMWF mun Veðurstofan fá aðgang að reikniafli miðstöðvarinnar, en það hefur mikla þýðingu fyrir eftirlit, spár og rannsóknir sem stofnunin stundar.Reiknimiðstöðin á rætur að rekja til ákvörðunar framkvæmdastjórnar Evrópubandalagins árið 1967 um að efla samvinnu þeirra 6 ríkja, sem þá voru í bandalaginu, á sviði tækni og vísinda, og þá einnig veðurfræði. Á vegum þessa samstarfsvettvangs kom fram sú hugmynd að stofna reiknimiðstöð fyrir veðurspáþjónustu og rannsóknir. Veðurfræðingar vildu að þessi stofnun þjónaði sem flestum veðurstofum í Evrópu, en ekki aðeins þeim ríkjum sem þá voru í Evrópubandalaginu. Árið 1973 skrifuðu 16 Evrópuríki undir stofnsáttmála reiknimiðstöðvarinnar sem tók til starfa tveimur árum síðar. Í upphafi miðaðist hlutverk reiknimiðstöðvarinnar við að gera veðurspár 3 til 10 daga fram í tímann, svonefndar meðaldrægar (e. medium range) spár, og var miðstöðin því nefnd European Center for Medium Range Weather Forecasting, skammstafað ECMWF.

Nú eru 34 þjóðir aðilar eða aukaaðilar að stofnuninni, sem sinnir margskonar veðurspám og miðlar þeim til veðurstofa aðildarríkja. Stofnunin hefur fyrir nokkru vaxið upp úr "meðaldræga" hlutverkinu og sinnir m.a. hnattrænum spám um veður næstu daga, vikur og mánuði, og einnig spám um þróun sjávarhita í Kyrrahafinu (s.s. El Nino‐spár). Í alþjóðlegum samanburði skarar ECMWF framúr með gæði veðurspáa.

Áreiðanleiki ECMWF í hnattrænum veðurspám gerir það að verkum að stofnunin er eftirsóttur samstarfsaðili meðal alþjóðastofnanna, s.s. Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO), Evrópskra stofnanna á sviði veðurtungla (ESA og EUMETSAT) auk stofnanna sem sinna eftirliti með loftmengun, kjarnorkuvá og þróunarhjálp.

Veðurstofur flestra aðildarþjóða nota spár ECMWF í rekstri sínum, gjarnan með því að nota reikniniðurstöður líkana ECMWF sem innlagsgögn fyrir veðurspárlíkön með þéttu reiknineti. Á Íslandi eru reikniniðurstöður ECMWF notaðar á þennan hátt og einnig eru þær notaðar víða í spákerfum Veðurstofunnar. Spár ECMWF liggja t.d. til grundvallar fyrir veðurspár á Atlantshafi, flugþjónustu allt að norðurpólnum og margar textaspár sem stofnunin gefur út. Á vef stofnunarinnar má víða sjá neðanmálstilkynningar um að gögnin byggi útreikningum líkans frá ECMWF.

Framlag ECMWF til rannsókna hefur reynst ómetanlegt. Í marga áratugi hafa rannsóknir vísindamanna stofnunarinnar á því hvernig bæta megi veðurspár skilað sér í þekkingu sem allar veðurstofur nýta sér. Flestir jarðarbúar njóta því ávaxta af rannsóknum þeirra. Einnig má nefna þátttöku stofnunarinnar í þróun hnattrænna lofthjúpsgreininga. Slík greining felst í útreikningum þar sem allar mælingar á nokkurra klukkutíma bili eru notaðar til að gera augnabliksmynd af ástandi lofthjúpsins. Þessi augnabliksmynd er svo notuð sem upphafsgildi í veðurspárlíkan, einskonar byrjunarstaða sem þróun veðurs næstu daga er reiknuð frá.

ECMWF hefur verið í fararbroddi á þessu sviði, og á vegum sérstakra greiningaverkefna veitir stofnunin vísindasamfélaginu aðgang að gögnum um veður hvar sem er á jörðinni, fjórum sinnum á sólarhring fyrir síðari hluta 20. aldar. Þessi gögn eru notuð á mörgum ólíkum fræðasviðum innan náttúruvísindanna og eru mikilvæg til að fylgjast með umhverfisbreytingum á jörðinni. Á Íslandi hafa þessi gögn verið notuð til að meta ákomubreytingar á jöklum, breytingar á úrkomu, hita og auk þess sem þau hafa verið notuð sem innlags eða jaðargögn fyrir veður‐, hafís‐ og hafhringrásarlíkön.

ECMWF rekur mjög öflugt kerfi af ofurtölvum og gagnaver og mun aðgengi Veðurstofunnar væntanlega skila sér í bættum veðurspám.

Birt:
7. mars 2011
Höfundur:
vedur.is
Tilvitnun:
vedur.is „Veðurstofan verður aðili að Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa, ECMWF“, Náttúran.is: 7. mars 2011 URL: http://nature.is/d/2011/03/07/vedurstofan-verdur-adili-ad-reiknimidstod-evropskr/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: