Umhverfisstofnun, Samtök iðnaðarains, Samtök verslunar og þjónustu og Félag íslenskra stórkaupmanna stóðu fyrir kynningarráðstefnu um nýja reglugeurð um mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni ("REACH") þann 18. september síðastliðinn. Ráðstefnan var vel sótt af fyrirtækjum sem framleiða, flytja inn eða nota efni á einn eða annan hátt og verða því fyrir áhrifum af REACH.

Á ráðstefnunni kom fram, Doris Thiemann, frá Efnastofnun Evrópu, en hún hélt tvö erindi annars vegar um helstu ákvæði REACH og hins vegar um forskráningu efna og hvar fyrirtæki geta fengið stuðning og upplýsingar um helstu skyldur sínar samkvæmt þessari nýju reglugerð. Einnig fluttu erindi, Sigríður Kristjánsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun og Bryndís Skúladóttir frá Samtökum iðnaðarins.

Kynningarráðstefna um REACH

Umhverfisstofnun, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Félag íslenskra stórkaupmanna stóðu fyrir kynningarráðstefnu um nýja reglugerð um mat, leyfisveitingu og takmarkanir að því er varðar efni (REACH) þann 18. september síðastliðinn. Ráðstefnan var vel sótt af fyrirtækjum sem framleiða, flytja inn eða nota efni á einn eða annan hátt og verða því fyrir áhrifum af REACH. Lesa meira

Umhverfisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir hefur sett reglugerð nr. 750/2008 um skráningu, mat, leyfisveitingu og takmarkanir á efnum. Lesa meira
 

Efnastofnun Evrópu (European Chemicals Agency, ECHA) var vígð með formlegum hætti 3. júní síðastliðinn af Jose Manuel Baroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Efnastofnunin sem staðsett er í Helsinki, hefur yfirumsjón með innleiðingu reglugerð Evrópusambandsins um skráningu, mat, leyfisveitingar og takmarkanir að því er varðar efni (REACH). Lesa meira
 

Til að vekja athygli fyrirtækja á forskráningu og skráningu efna skv. REACH stendur Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í samvinnu við Efnastofnun Evrópu fyrir ráðstefnu þann 14. apríl næstkomandi í Brussel. Lesa meira
 

REACH, ný reglugerð Evrópusambandsins um efni tekur gildi í Evrópu í dag, 1. júní 2007. REACH kveður á um skráningu, mat, leyfisveitingar og takmarkanir á notkun efna innan Evrópusambandsins. Lesa meira.
 
Birt:
22. september 2008
Höfundur:
Umhverfisstofnun
Uppruni:
Umhverfisstofnun
Tilvitnun:
Umhverfisstofnun „Kynningarráðstefna um REACH“, Náttúran.is: 22. september 2008 URL: http://nature.is/d/2008/09/22/kynningarraostefna-um-reach/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 23. september 2008

Skilaboð: