Töluverð mengun skapast þegar kaldur bíll er hitaður upp. Ef svokallaður hreyfilhitari er notaður þá er vélin og farþegarýmið heitt þegar farið er af stað og allur ís bráðnaður af rúðum. Hreyfilhitarinn sparar eldsneyti um 30% auk þess sem hann eykur öryggi. Útblástur eiturefna er fimm til tífalt minni og vélin slitnar minna sé hreyfilhitari notaður. Smurolían endist lengur og rafgeymirinn sjálfur einnig. Gott að nota tímastilltan hitara eða með þráðlausri fjarstýringu.

Birt:
21. júní 2007
Höfundur:
Náttúran er
Uppruni:
Náttúran.is
Tilvitnun:
Náttúran er „ Hreyfilhitari“, Náttúran.is: 21. júní 2007 URL: http://nature.is/d/2007/06/21/hreyfilhitari/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.
breytt: 3. maí 2014

Skilaboð: