Þann 15. október 2008 var opnuð veflausn sem birtir fjölbreytt gögn um náttúrufar og auðlindir Íslands á vefslóðinni www.natturuvefsja.is

Náttúruvefsjáin er afrakstur þróunarsamstarfs sem á uppruna sinn í verkefni sem hlaut styrk frá Rannís árið 1999 og hefur verið þróað áfram undir stjórn Vatnamælinga Orkustofnunar með framlagi frá Orkustofnun, upplýsingasamfélaginu, og Gagarín með aðkomu stofnana sem sinna öflun gagna um náttúru Íslands. Lausnin bætir m.a. möguleika almennings og skólafólks á að skoða náttúrufarsupplýsingar og fræðast um auðlindir landsins á lifandi hátt.

Markmiðið með Náttúruvefsjánni er að koma gögnum og niðurstöðum úr rannsóknum einstakra stofnana á framfæri á sameiginlegum vettvangi og í almenna notkun í leik og starfi. Þau nýtast jafnt stjórnsýslu, sérfræðingum, almenningi og fyrirtækjum, s.s. vegna búsetubreytinga, húsbygginga, í tengslum við ferðalög, afþreyingu og útivist.

Samnýting á gögnum og miðlun þekkingar er lykilþáttur í þessu samstarfi og hefur mikil reynsla safnast og samstarf aðila á sviði gagnamála styrkst til muna. Aðilar að samstarfshópi um Náttúruvefsjá eru Íslenskar orkurannsóknir, Landbúnaðarháskóli Íslands, Landmælingar Íslands, Líffræðistofnun Háskóla Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands, Orkustofnun, Vatnamælingar, Umhverfisstofnun, Veðurstofan, Veiðimálastofnun og hugbúnaðarfyrirtækið Gagarín sem hannaði viðmót og forritaði lausnina. Í gegnum Náttúruvefsjá hafa sérfræðingar og eigendur gagna aðgang að umsýsluviðmóti sem gerir þeim kleyft að uppfæra og aðlaga landfræðileg gögn og miðla öðrum tengdum gögnum svo sem lýsigögnum, fróðleik og ljósmyndum. Einnig geta samstarfsaðilar sett fram tengla inn á ítarefni á eigin vefsíðum. 

Hægt er að skoða á vefnum margvísleg gögn sem tengjast náttúru, auðlindum og náttúruvernd, þ.m.t. punkta, línur, fleka, fjarkönnunargögn, svo sem gervitunglagögn og loftmyndir, og tímaháðar landfræðilegar upplýsingar um t.d. veður og vatnafar. Með samræmdri miðlun á gögnum úr ólíkum áttum skapast einstakt tækifæri til að skoða upplýsingar í tíma og rúmi.

Náttúruvefsjáin verður kynnt nánar á ráðstefnu LÍSU samtakanna 22. október á Grand Hótel í Reykjavík.
Birt:
21. október 2008
Höfundur:
Orkustofnun
Uppruni:
Orkustofnun
Tilvitnun:
Orkustofnun „Náttúruvefsjá “, Náttúran.is: 21. október 2008 URL: http://nature.is/d/2008/10/21/natturuvefsja/ [Skoðað:19. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: