Sunnudaginn 27. október verða haldnir tónleikar í Neskirkju til stuðnings baráttu Hraunavina fyrir verndun Gálgahrauns og til heiðurs þeim sem handteknir voru í vikunni. Tónleikarnir hefjast kl. 16.00. Verndari er Vigdís Finnbogadóttir.

Aðgangseyrir er kr. 1.000 en einnig verður tekið við frjálsum framlögum. Auk þess má styðja baráttu Hraunavina fyrir verndun Gálgahrauns með því að leggja beint inn á söfnunarreikninginn 140-05-71017, kt. 480207-1490.

Dagskrá:

  • KK
  • Salonsveitin L´amour fou,
  • Hlín Pétursdóttir Behrens sópran og Tinna Þorsteinsdóttir píanóleikari,
  • Gunna Lára Pálmadóttir trúbador,
  • Arnljótur Sigurðsson úr Ojba Rasta,
  • Tómas R. Einarsson og félagar,
  • Söngkvartettinn Kvika,
  • Blásarakvintett Reykjavíkur.

Fjölmennum!

Mynd: Kjarvalsmálverk með mótívi úr Gálgahrauni.

Birt:
26. október 2013
Tilvitnun:
Náttúruverndarsamtök Íslands „Tónleikar í Neskirkju til stuðnings baráttu Hraunavina fyrir verndun Gálgahrauns“, Náttúran.is: 26. október 2013 URL: http://nature.is/d/2013/10/26/tonleikar-i-neskirkju-til-studnings-barattu-hrauna/ [Skoðað:25. apríl 2024]
Efni má nota eða vitna í samkvæmt almennum venjum sé heimilda getið með slóð eða fullri tilvitnun hér að ofan.

Skilaboð: